Viðskipti innlent

Vöruskiptin í jafnvægi í janúar

Í janúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 33,6 milljarða króna og inn fyrir 33,2 milljarða. Vöruskiptin í janúar voru því hagstæð um 0,3 milljarða króna.

Greint er frá þessu á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að í janúar 2008 voru vöruskiptin óhagstæð um 16,1 milljarð króna á sama gengi.

Verðmæti vöruútflutnings var 18,9% minna á föstu gengi en í janúar 2008 og verðmæti vöruinnflutnings var 42,2% minna á föstu gengi en í janúar 2008.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×