Viðskipti innlent

Bankarnir fengu leyfi til að ræða saman

„Allir reyna að finna réttláta og sanngjarna lausn,“ segir Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþings.
„Allir reyna að finna réttláta og sanngjarna lausn,“ segir Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþings.
Bankarnir óskuðu eftir leyfi Samkeppniseftirlitsins í haust til að ræða saman um aðgerðir til að koma til móts við fjölskyldur og fyrirtæki sem eiga í vandræðum með afborganir lána sinna. „Það var leyft að bera saman bækur sínar," segir Finnur Sveinbjörnsson, forstjóri Nýja Kaupþings.

Heimilin eru skuldsett og vanskil í bankakerfinu að aukast, sérstaklega hafa íbúðalán í erlendri mynt reynst þungur baggi.

„Allir reyna að finna réttláta og sanngjarna lausn. Skuldirnar gufa ekkert upp við það að Íbúðalánasjóður taki lánin yfir. Það þarf að átta sig á því hvernig best er að gera þetta óháð því hver lánveitandinn er," segir Finnur.

Enginn tímarammi liggur fyrir en Finnur er bjartsýnn á að lausn finnist. - ghs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×