Spáir óbreyttum stýrivöxtum hjá Seðlabankanum á fimmtudag 26. janúar 2009 11:26
Greining Glitnis spáir því að stjórn Seðlabankans tilkynni á fimmtudaginn að stýrivextir verða óbreyttir að þessu sinni. Framundan er flot krónunnar og bankinn vill mæta því með mikinn mun innlendra og erlendra vaxta. Í Morgunkorni greiningarinnar segir að verðbólgan sé líka enn mikil og raunstýrivextirnir reiknaðir sem munurinn á verðbólgunni nú og stýrivöxtunum neikvæðir. Verðbólguhorfur eru hins vegar viðunandi að því gefnu að krónan haldist stöðug eða styrkist. Verðbólgan samkvæmt okkar spá ætti að vera komin í markmið Seðlabankans á fyrri hluta árs 2010. Fyrsti vaxtaákvörðunardagur Seðlabanka Íslands á árinu verður á fimmtudaginn kemur 29. janúar. Bankastjórn mun tilkynna um vaxtaákvörðun sína þennan dag og samhliða verður rit þeirra Peningamál birt þar sem að þessu sinni verður uppfærð spá ásamt stuttri umfjöllun um þróun og horfur í efnahags- og peningamálum. Stýrivextir bankans eru nú 18% og afar háir í sögulegu og alþjóðlegu ljósi. Háum vöxtum er ætlað að draga úr líkunum á útflæði fjármagns þegar opnað verður fyrir gjaldeyrisflæði vegna fjármagnsflutninga en höft hafa verið á þessu gjaldeyrisflæði frá hruni bankanna. Áhrif stýrivaxtanna á innlenda eftirspurn og verðbólgu þar með eru mikil um þessar mundir þar sem lokast hefur fyrir erlent lánaflæði til landsins. Vextirnir leggjast því af fullum þunga á innlenda eftirspurn sem þegar er að dragast saman hratt vegna bankahrunsins og fleiri þátta. Verðbólgan er hins vegar mikil eða 18,1% og mun aukast enn í næstu mælingu sem birt verður á miðvikudaginn. Reiknar greiningin með því að sú mæling sýni 18,7% verðbólgu. Greining telur að stýrivextir Seðlabankans muni vera lækkaðir um mitt árið. Lækkun um 50 punkta er líklegt fyrsta skref í fremur hröðum vaxtalækkunarferli. Reiknað er með því að stýrivextir bankans verði komnir niður í 11,5% í lok árs sem er 6,5 prósentustigum lægri vextir en þeir eru núna.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Sjá meira