Fjárfestar sækja í ríkistryggð skuldabréf 26. janúar 2009 12:00
Sókn fjárfesta í ríkistryggð skuldabréf er mikil þessa dagana, hvort sem um er að ræða skammtímapappíra eða langtímabréf. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þar segir að sér í lagi virðist endurkoma ríkisvíxla inn á markað hafa verið vel til fundin, ef marka má viðbrögð á markaði. Viðtökur voru ágætar yfir það heila í útboðum Seðlabankans á ríkisskuldabréfum á föstudag. Eftirspurn eftir 3ja mánaða ríkisvíxlum reyndist nærri tvöföld miðað við áætlað framboð. Var tekið tilboðum fyrir 30 milljarða kr., líkt og stefnt hafði verið að, og voru flatir meðalvextir í útboðinu 15,43%. Hlýtur það að teljast vel ásættanlegt fyrir ríkissjóð, enda nokkru lægri vextir en í desemberútboði Seðlabankans. Áhugi fjárfesta á útboði ríkisbréfa á föstudag voru nokkuð mismunandi eftir flokkum. Þannig reyndist áhugi á tveggja ára ríkisbréfunum fremur takmarkaður. Alls bárust tilboð að fjárhæð 9,2 milljarða kr. í flokkinn og var tilboðum tekið fyrir ríflega 6,3 milljarða kr., en áætlað hafði verið að taka tilboðum fyrir allt að 10 milljarða kr. í þessum flokki. Kemur dræmur áhugi nokkuð á óvart, enda höfðu viðskipti með flokkinn verið lífleg dagana á undan og krafa hans lækkað verulega. Betur farnaðist í útboði lengstu ríkisbréfaflokkanna tveggja. Þar var tilboðum tekið fyrir tæplega 10 milljarða kr., í samræmi við áætlun Seðlabankans fyrir útboðið.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Sjá meira