Yfirtaka ríkisins á Glitni gat aldrei verið trúverðug 27. janúar 2009 21:38 Sigurður Einarsson
Sigurður Einarsson fyrrum stjórnarformaður Kaupþings segir að margt af því sem sagt hafi verið um sig í fjölmiðlum undanfarið sé ósatt og annað slitið úr samhengi. Sigurður segist fyrst og síðast hafa unnið að hag Kaupþings og hafi farið að lögum og reglum í því sambandi. Þetta kemur fram í bréfi sem Sigurður sendi vinum og vandamönnum í gær. Bréfið sem er nokkuð ítarlegt er birt á mbl.is í kvöld en þar segir Sigurður meðal annars að neyðarlögin svokölluðu sem sett voru eftir fall bankanna hafi sennilega verið verstu mistökin sem voru gerð. Hann segist lengi hafa verið í hópi þeirra sem ákaft hafa talað fyrir því að gjaldeyrisvarasjóður landsins yrði margfaldaður en því hafi í engu verið sinnt og seðlabanki landsins hafi því haldið áfram að vera algerlega vanmáttugur til þess að fást við það verkefni sitt að vera banki bankanna. „...þrátt fyrir að marg yfirlýst stefna stjórnvalda væri á þessum tíma að hér risi fjármálamiðstöð." Sigurður segir þetta einnig sárgrætilegt í ljósi þess að Seðlabanki Íslands gerði allt sem í hans valdi stóð til að koma í veg fyrir að bankarnir verðu sig gegn eða færðu sig af áhrifasvæði íslensku krónunnar. „Seðlabankinn þvingaði því íslenska banka til að þiggja af sér þjónustu sem hann sinnti í engu að veita." Hann segir einnig að sú aðferð sem notuð var við þjóðnýtingu Glitnis verði skráð í sögubækurnar sem mikið axarskaft. „Eftir á að hyggja er erfitt að segja hvort hægt hefði verið að bjarga Glitni eða ekki, ég hef ekki nægar upplýsingar til að meta það, en að ríkið tæki yfir bankann gat aldrei verið trúverðugt. Það má líka furðu sæta að ríkið treysti sér fremur til að kaupa hlutafé í bankanum fremur en að veita honum lán gegn veðum. Lán er alltaf tryggari krafa en hlutafé."
Mest lesið Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira