Viðskipti innlent

Hafa áhuga á að leggja sæstreng til Bandaríkjanna

Kristján L. Möller samgönguráðherra tók nýlega á móti þremur mönnum frá Bandaríkjunum sem kanna hugsanlega lagningu sæstrengs milli Íslands og Bandaríkjanna. Þeir kynntu ráðherra áform sín en engar ákvarðanir hafa verið teknar.

Í tilkynningu um málið segir að fyrirliði hópsins sé Steve Cowper, fyrrverandi landsstjóri frá Alaska, en með honum voru Greg Varisco og Íslendingurinn Sighvatur Pétursson.

Fjárfestarnir hafa áhuga á að leggja nýjan sæstreng milli landanna og gengur viðskiptahugmyndin meðal annars út á að nýting hans byggist á gagnaverum sem starfrækt yrðu hér á landi. Tveir mannanna voru á ferð hérlendis á liðnu hausti og ræddu þá meðal annars við iðnaðarráðherra.

Með heimsókninni til samgönguráðherra kynntu fjárfestarnir sér aðstæður og innviði fjarskipta hérlendis í því skyni að meta frekar áætlanir sínar og kynningu meðal fjárfesta vestan hafs.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×