Fyrstu hópuppsagnir í sögu Jarðborana 25. september 2009 10:02
Þar sem ljóst er að mannaflaþörf Jarðborana hf. minnkar til muna á næstunni eru uppsagnir um 30 starfsmanna óhjákvæmilegar. Þetta er í fyrsta sinn í sögu félagsins sem gripið er til hópuppsagna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir að samhliða efnahagserfiðleikum á Íslandi hefur verkefnum Jarðborana hf. við borun eftir jarðhita fækkað verulega, auk þess sem tafir á framgangi stórframkvæmda hafa haft neikvæð áhrif. Er nú svo komið að draga þarf úr starfsemi félagsins hér á landi, og eru uppsagnir starfsfólks hluti þeirra aðgerða. Þetta er nauðsynlegt þrátt fyrir verksamninga sem gerðu ráð fyrir fullri nýtingu borflotans allt fram til ársins 2012. Reynt hefur verið í lengstu lög að komast hjá uppsögnum en þar sem ekki er útlit fyrir að ástandið batni á næstu mánuðum er félaginu nauðugur einn kostur að grípa til þessara aðgerða nú. Að sögn Bents Einarssonar, forstjóra Jarðborana, er þetta mjög erfið ákvörðun. "Við erum að segja upp mjög hæfu starfsfólki með sérhæfða reynslu. Þetta er gott fólk sem við viljum ekki missa og það vissulega sárt ef við missum það varanlega frá okkur. Ef svo fer tapast hluti þeirrar þekkingar og forskots sem við höfum í dag í jarðvarmanýtingu og aðrar þjóðir hafa svo mikinn áhuga á," segir Bent. Þrátt fyrir þessar aðgerðir standa vonir til að óvissu létti um verkefnastöðu félagsins svo unnt verði að bjóða starfsmönnum endurráðningu. Mestu skiptir að ekki verði óþarfa tafir á að nýta orkulindir er varða stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar. Eftir uppsagnirnar munu um 150 manns starfa hjá Jarðborunum en þegar mest var sumarið 2008, störfuðu um 210 manns hjá félaginu. Jarðboranir eru með verkefni erlendis fyrir einn bor á Azoreyjum, en þar munu starfa á vegum félagsins um 40 manns fram eftir næsta ári. Vegna óvissuástandsins hér á landi er unnið að því að markaðssetja bora félagsins í verkefni erlendis, og þá m.a. í gegnum dótturfélag Jarðborana í Þýskalandi, en erfitt er að segja til um hvort eða hvenær það tekst.
Mest lesið Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Sjá meira