Ísland með fjórðu hæstu vexti í heimi 25. september 2009 09:28
Hagfræðideild Landsbankans hefur tekið saman uplýsingar yfir stýrivexti í fjölmörgum löndum heims og sést þar að þótt vextir séu vissulega háir á Íslandi eru til lönd þar sem vextir eru enn hærri. Ísland er raunar með fjórðu hæstu stýrivexti í heiminum. Í Hagsjá hagfræðideildarinnar segir að samkvæmt upplýsingum frá Bloomberg fréttaveitunni eru stýrivextir hæstir í Venesúela eða 19,10% en lægstir í Japan eða 0,10%. Næstu lönd á eftir Venesúela eru svo Pakistan og Líbanon, bæði með 13% og Ísland með 12% stýrivexti. Þetta samræmist ágætlega verðbólgu í viðkomandi löndum en í því fyrrnefnda hefur verðlag hækkað um 28,8% undanfarna tólf mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur hins vegar verið 2,2% verðhjöðnun í Japan. Í Hagsjánni segir að í umræðum um hátt vaxtastig hér á landi gleymist oft að taka tillit til þess hversu há verðbólgan er. Ef þess er freistað að meta raunstýrivexti vandast málið nokkuð þar sem verðbólga er mæld með ýmsum hætti eftir löndum. Efnahags- og framfarastofnunin OECD tekur saman samræmda vísitölu neysluverðs sem auðveldar samanburð milli landa. Sé hún notuð til þess að meta raunstýrivexti hvers mánaðar í tilteknu landi má fá grófa mynd af raunstýrivöxtum í viðkomandi landi. Á þann mælikvarða eru raunstýrivextir á Íslandi 1%. Þetta er á svipuðu róli og vexirnir eru í Þýskalandi sem er með tæplega eitt prósent raunstýrivexti og á Evrusvæðinu þar sem vextir þessir eru um 1,5%.
Mest lesið Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Sjá meira