Viðskipti innlent

Lánadrottnar yfirtaka allt hlutafé í Nýsi hf.

Í kjölfar óformlegs greiðslustöðvunarferlis hefur viðræðum milli eigenda Nýsis hf. og helstu lánadrottna félagsins nú lokið með yfirtöku lánardrottna á öllu hlutafé í Nýsi .

Lánadrottnarnir eru NBI, Landsbankinn, Nýr Glitnir, Nýja Kaupþings, SPRON, Byr sparisjóður ásamt fleirum

Í tilkynningu um málið segir að samhliða formlegri aðkomu aðila að félaginu munu lánardrottnar félagsins nú vinna að því að ljúka endurskipulagningu þess með sölu eða lokun óarðbærra dótturfélaga Nýsis hf. í huga. Markmið endurskipulagningarinnar er að tryggja rekstrarhæfi Nýsis hf. og valdra dótturfélaga en það er ljóst að yfirstandandi efnahagsþrengingar ásamt gengisfalli íslensku krónunnar og hárri verðbólgu hefur rýrt eigið fé Nýsis hf. og dótturfélaga til mikilla muna.

Í þessu sambandi er rétt að geta þess að fyrri eigendur Nýsis hf. hafa nú þegar gengið frá sölu á hlut félagsins í Meritum ehf. (móðurfélagi Miða.is og Billetlugen APS) til Straums Burðaráss Fjárfestingabanka hf. og óskað eftir því að Nýsir fasteignir hf. verði tekið til gjaldþrotaskipta enda hefur skuldastaða félagsins versnað umtalsvert síðastliðið ár og vanskil félagsins og dótturfélaga þess gagnvart NBI hf. (áður Landsbanka Íslands hf.) meiri en við var ráðið.

Ennfremur standa yfir viðræður um sölu á hlutum Nýsis í þróunarverkefnum félagsins við hlið Tónlistarhússins á austurbakka Reykjavíkurhafnar og yfirtöku Landsbankans á dótturfélögum Nýsis í Bretlandi.

Með formlegri yfirtöku helstu lánardrottna Nýsis hf. á félaginu hefst nú næsta stig í endurskipulagningu þess. Vonir standa til að niðurstaða um framtíðareignarhald félagsins og dótturfélaga muni skýrast á næstu 2-3 mánuðum.

Fyrrverandi eigendur Nýsis, þeir Sigfús Jónsson og Stefán Þórarinsson, hafa ennfremur sagt skilið við félagið en framkvæmdastjóri félagsins frá og með 16. febrúar verður Haraldur L. Haraldsson.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×