Efnahagsbrotadeild ekki beðið um gögn frá Fons 4. júní 2009 08:29
Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra hefur ekki beðið um bókhaldsgögn frá þrotabúi Fons, sem var eigu Pálma Haraldssonar. Fons lék lykilhlutverk í kaupunum á danska flugfélaginu Sterling. Efnahagsbrotadeildin rannsakar nú þátt Hannesar Smárasonar í kaupunum og framkvæmdi þrjár húsleitir í gær. Óskar Sigurðsson, skiptastjóri þrotabús Fons, staðfesti við fréttastofu í gærkvöld að efnahagsbrotadeildin hefði ekki beðið um nein bókhaldsgögn tengd kaupum eða sölu Fons á Sterling árið 2005. Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrotadeildarinnar, sagði í viðtali við danska blaðið Berlingske Tidende í gærkvöld að meðal þess sem verið væri að rannsaka væri meint 46 milljón dollara (um fimm milljarða) lán til félags í eigu Hannesar í Lúxemburg til að liðka fyrir kaupum Pálma á Sterling á vormánuðum 2005. Fons keypti Sterling á fimm milljarða vorið 2005. Sex mánuðum seinna keypti FL Group Sterling á fimmtán milljarða. Ári seinna var svo félagið brætt inn í Northern Travel Holding. Verðmæti þá var tuttugu milljarðar.
Tengdar fréttir Steingrímur fagnar vasklegri framgöngu „Ég fagna því að rannsóknarmenn séu að ganga vasklega til verks í þessum málum. Það hefur verið mikil eftirspurn eftir því að þessari rannsóknarvinnu miðaði áfram,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra og fulltrúar á vegum sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins gerðu í gær húsleit hjá lögmannastofunni Logos. 4. júní 2009 08:30 Húsleit hjá Hannesi Smárasyni Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra gerði húsleit að Fjölnisvegi 9 og 11 í morgun en þau hús eru skráð á eiginkonu Hannesar Smárasonar annarsvegar og hinsvegar á eignarhaldsfélag sem er í eigu Hannesar. Einnig var gerð húsleit hjá lögfræðistofunni Logos í tengslum við málið. 3. júní 2009 14:15 Meint ólöglegt lán rannsakað Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra rannsakar meint ólöglegt fimm milljarða króna lán FL Group til Hannesar Smárasonar, fyrrum forstjóra félagsins. Lánið er talið hafa verið notað til kaupa á Sterling-flugfélaginu árið 2005. Einnig er til rannsóknar hvort Hannes hafi orðið uppvís af umboðssvikum. 4. júní 2009 06:00 Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira
Steingrímur fagnar vasklegri framgöngu „Ég fagna því að rannsóknarmenn séu að ganga vasklega til verks í þessum málum. Það hefur verið mikil eftirspurn eftir því að þessari rannsóknarvinnu miðaði áfram,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra og fulltrúar á vegum sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins gerðu í gær húsleit hjá lögmannastofunni Logos. 4. júní 2009 08:30
Húsleit hjá Hannesi Smárasyni Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra gerði húsleit að Fjölnisvegi 9 og 11 í morgun en þau hús eru skráð á eiginkonu Hannesar Smárasonar annarsvegar og hinsvegar á eignarhaldsfélag sem er í eigu Hannesar. Einnig var gerð húsleit hjá lögfræðistofunni Logos í tengslum við málið. 3. júní 2009 14:15
Meint ólöglegt lán rannsakað Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra rannsakar meint ólöglegt fimm milljarða króna lán FL Group til Hannesar Smárasonar, fyrrum forstjóra félagsins. Lánið er talið hafa verið notað til kaupa á Sterling-flugfélaginu árið 2005. Einnig er til rannsóknar hvort Hannes hafi orðið uppvís af umboðssvikum. 4. júní 2009 06:00