Viðskipti innlent

Gylfi býst við lausn á vanda heimilanna fyrir lok mánaðarins

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gylfi Magnússon ætlar að klára tillögurnar fyrir lok mánaðarins. Mynd/ Anton.
Gylfi Magnússon ætlar að klára tillögurnar fyrir lok mánaðarins. Mynd/ Anton.
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra vonast til að vera með fullmótaðar tillögur til lausna á skuldavanda heimilanna þegar þing kemur saman um næstu mánaðamót.

„Ég er svona hóflega bjartsýnn á að það takist. Þetta gæti jafnvel komið fyrir mánaðamótin," segir Gylfi. Hann bendir þó á að ekkert sé fast í hendi ennþá. Tillögurnar hafi fyrst og fremst verið unnar á forræði þriggja ráðuneyta, það er viðskiptaráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og dómsmálaráðuneytis. Gylfi segist að talsverðu leyti geta tekið undir svokallaða LÍN hugmynd Þórólfs Matthíassonar um að tengja greiðslur af lánum við laun. Óvíst sé þó hvort það verði sú leið sem verði ofan á.

„Það er auðvitað þannig að skuldavandi heimilanna er kannski fyrst og fremst kominn fram vegna þess að raunlaun hafa lækkað verulega en lánin staðið í stað og jafnvel hækkað. Eðlileg viðbrögð við því gætu verið að lækka greiðslubyrði, allavega til skamms tíma. Síðan þegar tekjur vaxa almennt í þjóðfélaginu að þá muni afborganir vaxa aftur. Það er að segja þegar við erum komin í gegnum skaflinn og búin að ná vopnum okkar aftur og fólk væntanlega fyrr eða síðar komið með meiri tekjur en það hafði fyrir hrun," segir Gylfi. Þessa grunnhugsun geti hann tekið undir. Hann óttast hins vegar að með það að tengja greiðslur við tekjur hvers einstaklings gæti verið vinnuletjandi og hvatt til svartrar vinnustarfsemi.

Svarið gæti verið það að tengja endurgreiðslur við almenna launaþróun í landinu en ekki laun hvers og eins einstaklings, líkt og gert er núna með greiðslujöfnunarúrræðum. Þá greiði fólk ekki samkvæmt upphaflegum lánsskilmálum heldur verði greiðslur lækkaðar talsvert og síðan tengdar svokallaðri greiðslujöfnunarvísitölu. Slíkar greiðslur fari fyrst og fremst eftir þróun raunlauna en jafnframt atvinnustigi. „Þannig að þá fara greiðslurnar eftir því hversu vel árar á vinnumarkaði. Á meðan það er samdráttur þar þá haldast þær lágar og þegar betur árar þá fara þær hækkandi," segir Gylfi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×