Íslandsbanki fjármagnar byggingu skóla á Fljótsdalshéraði 22. apríl 2009 08:07 Frá vinstri: Páll Björgvin Guðmundsson útibússtóri Íslandsbanka á Austurlandi, Una Steinsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Íslandsbanka, Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka, Eiríkur B. Björgvinsson bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, og Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri Fljótsdalshéraðs.
Íslandsbanki og Fljótsdalshérað hafa gert með sér samning um fjármögnun á ný- og endurbyggingu við Grunnskólann á Egilsstöðum. Verkefnið er eitt það stærsta sem sveitarfélagið hefur ráðist í en gert er ráð fyrir að nýja byggingin verði rúmir fjögur þúsund fermetrar að flatarmáli. Í tilkynningu segir að jafnframt verði unnið að endurbótum á eldri hluta skólans samhliða nýbyggingunni. Verkið hófst vorið 2008 og áætlað er að því ljúki endanlega á árinu 2010 en þá mun skólinn hafa á að skipa glæsilegri aðstöðu með heildarrými upp á tæplega sjö þúsund fermetra. „Við erum afar ánægð með að ráðast í þennan áfanga á ný- og endurbyggingu við grunnskólann, í samstarfi við Eignarhaldsfélagið Fasteign og með fulltingi Íslandsbanka", segir Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs. „Það er mjög mikilvægt fyrir atvinnulífið hér að sveitafélagið standi fyrir framkvæmdum nú á samdráttartímum eins og mál standa í dag. Þetta er viðamikið verkefni og verður skólinn og öll aðstaða fyrir starfsfólk og nemendur til mikillar fyrirmyndar að verkinu loknu. Þetta er einn megin þáttur í þeirri framtíðarsýn Fljótsdalshéraðs að skapa gott samfélag á traustum grunni." „Íslandsbanki setti á fót útibú á Fljótsdalshéraði árið 2005 og hefur tekið þátt í því blómlega starfi sem þar hefur verið byggt upp", segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. ,,Atvinnuuppbygging hefur sjaldan skipt eins miklu máli og nú og er það sérlega ánægjulegt fyrir Íslandsbanka að geta tryggt þessu verkefni farsælan framgang með fjármögnun." "Samningurinn við Fljótsdalshérað er gríðarlega mikilvægur fyrir útibú Íslandsbanka á Egilsstöðum" segir Páll Björgvin Guðmundsson útibússtjóri Íslandsbanka. Með þessum samningi bætist sveitafélagið í hóp í góðra viðskiptavina útibúsins."
Mest lesið Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira