Samkeppnishæfi Íslands fellur um sex sæti 8. september 2009 09:02
Samkeppnishæfni Íslands fellur um sex sæti í vísitölu Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) um samkeppnishæfni þjóða 2009-2010 en landið fer úr 20. sæti 2008-2009 í 26. sæti nú. Sviss er samkeppnishæfasta hagkerfið og ýtir Bandaríkjunum niður í 2. sæti. Næst koma Singapor og Norðurlöndin Svíþjóð, Danmörk og Finnland en Noregur er í 14. sæti. Í fréttatilkynningu frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands um málið segir að vísitala World Economic Forum um samkeppnishæfni er virtur mælikvarði á efnahagslíf 133 þjóða víða um heim. Vísitalan er mjög víðtæk og endurspeglar þá þætti sem segja til um framleiðni þjóða og vaxtarmöguleika. Samkeppnishæfnivísitalan byggir á opinberum upplýsingum og könnun sem gerð er meðal stjórnenda í atvinnulífinu. Nýsköpunarmiðstöð Íslands er samstarfsaðili Alþjóðaefnahagsráðsins á Íslandi og sá um framkvæmd könnunarinnar í mars - maí síðastliðið vor. Í skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins The Global Competitiveness Report 2009-2010 sem kemur út í dag er fjallað um stöðu Íslands. Í henni segir að fall Íslands í vísitölunni megi aðallega rekja til skorts á efnahagslegum stöðugleika, þar sem landið fer út 56. sæti í 119. sæti, og slæmu mati á þróunarstigi fjármálamarkaða, en þar fer Ísland úr 20. sæti í 85. sæti. „Samt sem áður munu sterkar stoðir samkeppnishæfni landsins á lykilsviðum vonandi auðvelda bata og gera íslenska hagkerfinu kleift að jafna sig hraðar. Þannig getur Ísland reitt sig á fyrsta flokks menntunarkerfi á öllum stigum (2. sæti í heilsu og grunnmentun og 4. sæti í framhaldsmenntun og þjálfun), auk tiltölulega hás þróunarstigs viðskipta (23. sæti) þar sem tæknilegur viðbúnaður er tiltölulega mikill (14. sæti) og nýsköpun sömuleiðis (16. sæti). Mjög sveigjanlegur vinnumarkaður (6. sæti), skilvirkir innviðir (11. sæti) og sterkar stofnanir (13. sæti) styrkja jafnframt stöðu landsins," segir í skýrslunni.
Mest lesið Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Atvinnulíf Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Sjá meira