FME vísar málum fimm lífeyrissjóða til saksóknara 17. mars 2009 16:36
Fjármálaeftirlitið hefur vísað málum fimm lífeyrissjóða sem eru í rekstri og eignastýringu Landsbankans til frekari rannsóknar sérstaks saksóknara sem í dag hóf opinbera rannsókn á meintum brotum þeirra á fyrri hluta árs 2008. Fjármálaráðherra hefur að tillögu Fjármálaeftirlitsins (FME) skipað Íslenska lífeyrissjóðnum, Lífeyrissjóði Eimskipafélags Íslands, Lífeyrissjóði Tannlæknafélags Íslands, Eftirlaunasjóði FÍA og Kili lífeyrissjóði umsjónaraðila samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Þessir lífeyrissjóðir eru í rekstri og eignastýringu Landsbankans. Í frétt um málið frá fjármálaráðuneytinu segir að tillögur Fjármálaeftirlitsins um skipan umsjónaraðila eru fram komnar í kjölfar rannsóknar eftirlitsins á því hvort viðkomandi sjóðir hafi gerst brotlegir við lög varðandi starfsemi á árinu 2008. Fjármálaeftirlitið hefur vísað málinu til frekari rannsóknar sérstaks saksóknara sem í dag hóf opinbera rannsókn á hinum meintu brotum. Umsjónaraðili Íslenska lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs Eimskipafélags Íslands frá og með 17. mars 2009 er Lára V. Júlíusdóttir hrl. Umsjónaraðili Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands, Eftirlaunasjóðs FÍA og Kjalar lífeyrissjóðs frá og með 17. mars 2009 er Viðar Lúðvíksson hrl. Umsjónaraðilar taka við réttindum og skyldum stjórnar og framkvæmdastjóra eftir því sem nánar er kveðið á um í erindisbréfum þeirra. Erindisbréfin gilda til 1. júlí 2009 og skulu umsjónaraðilar þá hafa lagt fram tillögur um framtíð sjóðanna fyrir fjármálaráðherra. Vakin er athygli á því að daglegur rekstur lífeyrissjóðanna helst óbreyttur og mun hagsmuna sjóðfélaga verða gætt í hvívetna. Á næstu dögum verður sjóðfélögum umræddra lífeyrissjóða sent bréf með frekari upplýsingum um stöðu mála og næstu skref. Áréttað skal að þau meintu brot sem hér um ræðir varða starfsemi umræddra lífeyrissjóða á árinu 2008 og eru því á engan hátt á ábyrgð yfirstjórnar Nýja Landsbanka Íslands.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira