Sterk viðbrögð við lækkandi verðbólguvæntingum 26. febrúar 2009 12:01
Sterk viðbrögð á skuldabréfamarkaði í kjölfar á birtingu verðbólgutalna gærdagsins benda til þess að verðbólguvæntingar hafi lækkað talsvert. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að þetta sé áframhald á þróun sem staðið hefur nær óslitið frá því verðbólgutölur janúarmánaðar voru birtar, en líkt og í gær voru þær tölur í lægri kanti miðað við spár og væntingar á markaði. Fyrir birtingu verðbólgutalna í janúar var krafa á stysta flokki íbúðabréfa, rétt um 4% en þegar þetta er ritað er krafan komin í 6,3%. Þessi flokkur íbúðabréfa er næmastur fyrir breyttum verðbólguvæntingum vegna þess hve líftími hans er stuttur, en ámóta kröfuþróun má þó sjá í öllum flokkum íbúðabréfa. Ríkisbréf mynda grunn óverðtryggða vaxtaferils á skuldabréfamarkaði og íbúðabréf Íbúðalánasjóðs gegna sambærilegu hlutverki meðal verðtryggðra skuldabréfa. Samanburður á þessum tveimur ferlum gefur síðan til kynna verðbólguvæntingar á markaði. Á sama tíma og krafa íbúðabréfa hefur hækkað verulega hefur krafan á flestum flokkum ríkisbréfa lækkað. Verðbólguálag á markaði hefur því lækkað umtalsvert á undanförnum fimm vikum. Þannig var verðbólguálagið til 3 ára 6,3% fyrir ríflega mánuði síðan og til 6 ára var álagið 5%. Í dag er verðbólguálagið hins vegar nánast það sama til skemmri og lengri tíma, á bilinu 2,7% - 2,8%
Mest lesið Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira