Adams vill halda Hermanni 10. janúar 2009 20:18 Tony Adams vill ekki missa Eyjamanninn sterka NordicPhotos/GettyImages
Tony Adams knattspyrnustjóri Portsmouth hefur farið þess á leit við Hermann Hreiðarsson að hann fari ekki frá félaginu í janúar eins og til stóð. Hermann hefur ekki verið í náðinni hjá Adams að undanförnu en á fundi þeirra í dag kom fram að Adams vildi engu að síður halda honum áfram hjá félaginu. Þetta kom fram í viðtali við Hermann í þættinum 4-4-2 á Stöð 2 Sport í kvöld. Hermann hefur verið orðaður við fjölda liða á Englandi og í Skotlandi og umboðsmaður Hermanns tjáði Vísi síðdegis að hann vænti þess að eitthvað gerðist í málinu eftir helgina. "Ég talaði við Adams í byrjun desember og sagði honum að ég væri að fara frá félaginu og hann skildi það alveg og var jákvæður á það. Maður er búinn að heyra í nokkrum liðum og það mál að verða komið á skrið, en þá er allt í einu komið annað hljóð í Adams og hann vill bara halda mér," sagði Hermann. Gengi Portsmouth hefur ekki verið upp á marga fiska undanfarið og vera má að sú þróun hafi orðið til þess að Adams snerist hugur. "Deildin er hrikalega skemmtileg og Adams nefndi það sérstaklega að hann vildi hafa mig með í þeirri baráttu sem framundan er," sagði Hermann. En vill Hermann þá enn fara frá Portsmouth - og þá hvert? "Ég vil alveg halda mínu striki og Adams er búinn að vera með mig í eitt og hálft ár svo hann veit alveg hvað hann er að fá. Það þýðir ekkert fyrir hann að gefa mér einhvern séns í einn eða tvo leiki og sjá hvort ég stend mig í þeim. Ég sagði honum það og sagði að þýddi ekkert að vera með einhverja lofræðu núna, ég vildi fara. Það eina sem ég vildi væri að fá að spila." Samningur Hermanns við Portsmouth rennur út í sumar og hann var spurður að því hvort Adams hefði verið tilbúinn að skoða að framlengja samninginn. "Jafnvel, en hann vill að ég spili tvo eða þrjá leiki svo hann geti sannfært stjórnina um að ég eigi eitt ár inni, en hann veit nákvæmlega hvað ég get og það er aukaatriði hvort ég spila einn eða tvo leiki í viðbót. Hann er auðvitað búinn að kaupa mann í mína stöðu og ef hann ætlar að tefla honum fram, hef ég ekkert að gera hérna og vil fara annað. Ég vil bara fá að spila og ég mun tala við hann aftur á mánudaginn," sagði Hermann.
Enski boltinn Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Argentína - Sviss | Hverjir fá síðasta farseðilinn? Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira