Fullkomin óvissa um endurreisnarsjóð Straums Sigríður Mogensen skrifar 17. mars 2009 18:30 Forstjórinn fyrrverandi og stjórnarformaðurinn. William Fall og Björgólfur Thor.
Þrír milljarðar króna í endurreisnarsjóði Straums, eru í fullkominni óvissu og hugsanlega glatað fé. Fjöldi erlendra fjárfesta hafði sýnt sjóðnum áhuga. Straumur stofnaði dótturfyrirtækið Icelandic Capital Management til að halda utan um rekstur sjóðsins og ætlaði bankinn sjálfur að leggja 6 milljarða króna í verkefnið. Stefnt var að því að aðrir fjárfestar legðu til allt að 70 milljarða króna. Eftir að skilanefnd á vegum Fjármálaeftirlitsins tók yfir Straum virðist verkefnið vera að stöðvast, en samkvæmt heimildum fréttastofu hafði fjöldi erlendra fjárfesta sýnt því áhuga. Stefna sjóðsins var að líta til fjárfestinga í íslenskum fyrirtækjum og fasteignum. Gunnar Thoroddsen, einn framkvæmdastjóra sjóðsins, sagði í samtali við fréttastofu í dag að óvissa ríki um framhaldið. Vonast hann til þess að sjóðurinn geti starfað áfram enda gríðarlega mikilvægt verkefni fyrir framtíð íslensks atvinnulífs. Í síðustu viku voru 3 milljarðar króna nú þegar komnir í sjóðinn, og voru þeir geymdir á innlánsreikningum hjá Straumi. Stóra spurningin er hvort sjóðurinn njóti sömu tryggingar og aðrir innlánseigendur bankans. Fyrst um sinn virðist svo ekki vera. Samkvæmt lögum um innistæðutryggingar stendur skýrt að dótturfélög njóti ekki ábyrgðar. En í sömu málsgrein laganna stendur þó eftirfarandi: „Hér segir að innistæður sjóða um sameiginlega fjárfestingu séu ekki undanskildar tryggingunni. Þetta er þó ekki fullkomlega skýrt og því ekki hægt að útiloka að peningarnir séu glataðir." Framkvæmdastjórar sjóðsins hafa sent erindi til skilanefndar Straums og óskað eftir svörum um framhaldið.
Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Sjá meira