Enn lækkar krónan - Verð hennar á aflandsmarkaði 18% lægra Gunnar Örn Jónsson skrifar 18. ágúst 2009 12:56
Gengi krónunnar hefur lækkað í morgun um tæpt hálft prósent í fremur litlum millibankaviðskiptum. Er þetta þriðji dagurinn í röð sem gengi krónunnar lækkar en í gær lækkaði gengi hennar um hálft prósent og voru viðskipti á millibankamarkaði með gjaldeyri tvær milljónir evra sem er nokkuð meira en venjulega en engu að síður lítið. Þetta kemur fram í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka. Verð á krónunni er 18 prósentum lægra á aflandsmarkaði heldur en á innlendum markaði sem gefur vísbendingar um að krónan muni lækka enn frekar þegar og hreinlega ef gjaldeyrishöftin verða afnumin á næstu tveimur til þremur árum. Evran stendur nú í tæplega 181 krónum og nálægt sínu lægsta gildi á árinu. Áhyggjuefni Gengi krónunnar hefur lækkað frá því að Seðlabankinn tilkynnti um vaxtaákvörðun sína á fimmtudaginn í síðustu viku. Peningastefnunefnd bankans nefndi í yfirlýsingu sinni í síðustu viku að þegar höft á fjármagnshreyfingar eru til staðar ætti aukinn afgangur á vöru- og þjónustuviðskiptum að styrkja gengi gjaldmiðilsins. Tímabundnir áhrifaþættir, til dæmis rýrnun viðskiptakjara, árstíðarbundnar vaxtagreiðslur til erlendra aðila og árstíðarbundin aukning innflutnings, hafa á ýmsum tímum haft neikvæð áhrif á viðskiptajöfnuð og gengi krónunnar. Nefndin segir að það sé á hyggjuefni að gengi krónunnar hefur ekki hækkað að þessum tímabundnu áhrifum gengnum. Þvert á móti er gengi krónunnar að lækka. Lækkun krónunnar eykur líkur á því að peningastefnunefndin ákveði að hækka vexti Seðlabankans á næstunni. Velta á aflandsmarkaði meiri en á innlendum markaði - Krónan er 18% lægri þar Engin breyting hefur orðið á gengi krónunnar gagnvart evrunni á aflandsmarkaði síðustu daga þó svo að gengi krónunnar hafi verið að lækka á innlendum markaði. Engu að síður er veltan á aflandsmarkaði nokkuð meiri en á innlendum markaði eða um 5 milljónir evra á dag og sá markaður þannig virkari. Verðið á evrunni hefur verið í kringum 220 krónur og verðgildi krónunnar því tæplega 18% lægra þar en á innlendum markaði. Heldur er því að draga saman með gengi krónunnar á þessum tveim mörkuðum.
Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Sjá meira