Viðskipti innlent

Straumur hækkaði mest í Kauphöllinni í dag

William Fall, forstjóri Straums.
William Fall, forstjóri Straums. Mynd/GVA

Gengi hlutabréfa í Straumi hækkaði um 8,33 prósent í dag, sem er langmesta hækkun dagsins. Á eftir fylgdi gengi bréfa í Bakkavör, sem hækkaði um 0,98 prósent. Þá hækkaði gengi bréfa í Færeyjabanka um 0,86 prósent, Marel Food Systems um 0,77 prósent, Icelandair Group um 0,38 prósent og í Össuri um 0,11 prósent.

Á sama tíma féll gengi bréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, um 26 prósent auk þess sem gengi bréfa Eimskips féll um 3,1 prósent.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) stóð nokkurn veginn í stað frá í gær. Hún hækkaði um 0,03 prósent og endaði í 321 stigi. Nýja vísitalan (OMXI6) hækkaði hins vegar um 1,87 prósent og endaði í 913 stigum.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×