Skotveiðiverkefni fær rúma milljón evra í styrk 6. janúar 2009 13:39
North Hunt verkefnið á Íslandi er þriggja ára alþjóðlegt verkefni sem hefur hlotið styrk upp á 1.1 milljón evra, eða um 170 milljónir kr. úr Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins á tímabilinu 2008-2010. Verkefnið miðar að því að þróa sjálfbæra skotveiðitengda ferðaþjónustu á dreifbýlum svæðum í Norður Evrópu, þar sem rannsóknarsvæðin eru jaðarsvæði Finnlands, Svíþjóðar, Íslands, Skotlands og Kanada. „Alþjóðlegt samstarf tryggir breiða sérfræðiþekkingu á skotveiðitengdri ferðaþjónustu og mun verða grundvöllur alþjóðlegra tengslaneta í greininni þannig að fólk geti bæði lært af reynslu annarra sem stunda skotveiðitengda ferðaþjónustu og miðlað af sinni reynslu," segir Hjördís Sigursteinsdóttir sérfræðingur hjá RHA - rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri og verkefnisstjóri North Hunt á Íslandi í tilkynningu um málið. „ Verkefnið er nú þegar komið vel á veg með fyrstu athugunum á félagslegu, hagrænu og vistfræðilegu umhverfi. Fyrstu niðurstaðna er að vænta innan skamms". Skotveiðitengd ferðaþjónusta er mannaflafrek og munu dreifbýl svæði geta hagnast á slíkri náttúruferðamennsku. Hefð er fyrir veiðum í öllum þátttökulöndum og í mörgum er mikil þátttaka í veiðifélögum. Þannig er ein af forsendunum fyrir velgengni skotveiðitengdrar ferðaþjónustu aðlögun að veiðihefðum í hverju landi fyrir sig. „Það er einmitt ástæðan fyrir því að frumkvöðlar í skotveiðitengdri ferðaþjónustu eru fengnir til samstarfs við verkefnið" útskýrir Hjördís og bætir við: „Það er einnig þörf á nákvæmum hagtölum varðandi skotveiðar til að meta möguleikana fyrir skotveiðitengda ferðaþjónustu sem lífsviðurværi á norðurslóðum, en einn af verkþáttum North Hunt verkefnisins er að safna slíkum gögnum sem og að bera saman veiðistjórnun í löndunum fimm".
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira