Viðskipti innlent

Hagnaður hjá House of Fraser og Iceland í sókn

Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs.
Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs.

Breska verslunarkeðjan House of Fraser sem er í eigu Baugs tilkynnti í dag um gott gengi í jólavertíðinni. Á fimm vikna tímabili fyrir jól og fram til þriðja janúar jókst heildarsala í verslunum félagsins um 4,5 prósent miðað við sama tímabil í fyrra og hagnaður jókst

Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs segir að þar á bæ séu menn mjög ánægðir með þetta góða gengi, ekki síst í ljósi þess erfiða ástands sem nú sé á breskum smásölumarkaði.

„Þetta eru mjög fínar fréttir og við erum afar ánægðir með ganginn á House of Fraser sem hefur verið mjög góður heilt á litið," segir Gunnar Sigurðsson forstjóri Baugs í samtali við fréttastofu. „Þessar niðurstöður sýna betur en nokkuð annað styrkleikann í félaginu. Í tilkynningunni frá House of Fraser kemur einnig fram að fjárhagsleg staða félagsins sé góð. Lausafjárstaðan er um 85 milljónir punda og hefur félagið staðið að fullu í skilum.

Fjórar nýjar búðir í fyrra

„Við höfum borgað niður gríðarlega mikið af skuldum þrátt fyrir ofboðslega fjárfestingu í nýjum búðum, en við opnuðum fjórar nýjar búðir í fyrra," segir Gunnar ennfremur. „Við höfum einnig lagt mikið í breytingar á gömlu búðunum til þess að gera House of Fraser að þeirri hágæðaverslun sem við teljum að hún eigi að vera. Þetta hefur kostað mikið og því eru þessar niðurstöður því mjög góðar, sérstaklega ef maður setur þær í samhengi við þær erfiðu rekstraraðstæður sem eru í breskri smásölu í dag," segir hann.

Aðspurður um ganginn á öðrum verslunum í eigu Baugs í Bretlandi segir Gunnar að greining á þeim standi nú yfir. „En ef við horfum eignasafnið í heild sinni er það upp um 4,5 prósent á þessu tímabili. Markaðsupplýsingar gefa hinsvegar til kynna að markaðurinn í heild sinni hafi verið niður um fjögur prósent á sama tímabili. Þetta er því frábær árangur okkar fyrirtækja og þar fara Iceland verslanirnar fremstar í flokki," segir Gunnar en að hans sögn var gríðarleg söluaukning hjá Iceland keðjunni fyrir jólin. „Sum tískuvörumerkin voru einnig mjög sterk og önnur ekki eins og gengur, en heilt yfir er þetta mjög ásættanleg niðurstaða og í rauninni betri heldur en við vorum farnir að óttast."

Iceland bætir við sig 51 verslun

Iceland keðjan festi fyrir jólin kaup á 51 Woolvorths verslun og segir Gunnar það afar góðar fréttir fyrir Iceland. „Þetta er mjög spennandi því þótt Iceland hafi gengið mjög vel eins og fram hefur komið hefur aðgangur að verslunarrými staðið frekari vexti fyrir þrifum," segir hann. „Þrátt fyrir mikla áherslu á aukinn vöxt hefur okkur ekki tekist að opna nema nítján nýjar búðir síðustu tvö ár. Það er mjög erfitt að finna gott verslunarrými fyrir þennan rekstur þannig að svona 50 búða pakki hefur mikil áhrif á félagið til góðs þannig að það eru spennandi tímar framundan," segir Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs að lokum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×