Innlent

Laminn illa í Eyjum

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Herjólfsdalurinn í gær.
Herjólfsdalurinn í gær. Mynd/Óskar P. Friðriksson
24 ára gamall þjóðhátíðargestur hefur kært líkamsárás til lögreglu. Hann bar skarðan hlut frá borði eftir átök við annan mann í morgun og hlaut brotna tönn, nefbrot og skurð í andliti.

Lögreglan veit hver árásarmaðurinn er, en hefur ekki tekist að hafa hendur í hári hans. Hans er nú leitað.

Ástæða árásarinnar mun vera persónulegs eðlis, en árásarmaðurinn taldi sig eiga eitthvað sökótt við fórnarlambið frá deginum áður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×