Innlent

Slapp furðuvel eftir mótorhjólaslys

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Mótorhjól.
Mótorhjól. Mynd/Arnþór
Mótorhjólamaður sem fór út af Þingvallaveginum um þrjú leytið í dag virðist hafa sloppið furðuvel, að því er vakthafandi læknir á slysadeild segir.

Maðurinn er nú í rannsókn og virðist ekki hafa hlotið alvarlega áverka.

Hann var einn á ferð þegar slysið varð, en ekki liggur nákvæmlega fyrir af hverju hann missti stjórn á hjólinu og fór út af veginum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×