Fjárfestingar í nýju íbúðahúsnæði minnka um helming 10. september 2009 12:19
Fjárfesting í nýju íbúðarhúsnæði hefur dregist hratt saman undanfarið. Á öðrum ársfjórðungi þessa árs nam hún 12,5 milljörðum kr. og hafði þá dregist saman um 45% á föstu verði frá sama ársfjórðungi fyrir ári samkvæmt tölum sem Hagstofan birti nýlega. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að fjárfesting var á fyrri hluta þessa árs ríflega 3% af landsframleiðslu en þegar mest var um að vera í íbúðafjárfestingunni í síðustu uppsveiflu var hlutfall þetta um 7%. Reikna má með því að framhald verði á þessari þróun á næstunni. Þannig spáir Seðlabankinn því að samdrátturinn í íbúðafjárfestingu verði 47% í ár og 14% á næsta ári. Fjármálaráðuneytið spáir hins vegar 60% samdrætti í íbúðafjárfestingu í ár og 5% á næsta ári. Munurinn á spánum felst aðallega í tímasetningu samdráttarins en spárnar eru samhljóða um að framundan er meiri samdráttur í nýfjárfestingum í íbúðarhúsnæði. Mikil lækkun á kaupmætti heimilanna, aukið atvinnuleysi, fall krónunnar, erfið skuldastaða margra heimila, verulegt framboð nýbygginga og lækkun íbúðaverðs eru meðal þeirra þátta sem orsaka þessa þróun. Væntingar almennings um að efnahagsástandið eigi frekar eftir að versna á næstunni dregur síðan enn úr vilja til nýfjárfestinga í íbúðarhúsnæði. Fjárfestingin í íbúðahúsnæði mun ekki taka við sér fyrr en árið 2011 að mati Seðlabankans og Fjármálaráðuneytisins.
Mest lesið Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Borið á kvörtunum undan leigubílstjórum Neytendur Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Viðskipti innlent Framtíð tannlækninga og gervigreindar – kynntu þér Oraxs Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf „Það er hægt að byrja að fjárfesta með fimm þúsund krónum á mánuði“ Atvinnulíf Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Sjá meira
Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Viðskipti innlent
Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Viðskipti innlent