Forgangur krafna skiptir miklu - myndrænt Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 5. ágúst 2009 10:37 Á myndinni sést munurinn á ábyrgð ríkisins eftir forgangi krafna. „
Ég held að margir hafi haldið að ef eignir Landsbankans dygðu fyrir þessum 670 milljörðum, þá væri íslenska ríkið stikkfrí í Icesave. Sú er ekki raunin," segir Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri gagnavinnslufyrirtækisins Datamarket. Það er vegna þess hvernig forgangi krafna í Icesave samningnum er háttað. Samningurinn gerir ráð fyrir því að kröfurnar séu skiptar, þ.e. Ísland þarf alltaf að greiða ákveðið hlutfall lágmarkstryggingarinnar ef eignir Landsbankans duga ekki fyrir öllum innistæðum. „Ef að kröfurnar væru óskiptar, þá fengju allir innistæðueigendur greitt sama hlutfall innistæðu sinnar. Ríkið þyrfti bara að fylla upp í ef eignir Landsbankans dygðu ekki upp í 16.500 pund eða 20.887 evrur," segir Hjálmar. Þannig þyrfti íslenska ríkið til dæmis ekki að greiða neitt inn á reikning innistæðueiganda sem ætti fjörutíu þúsund pund ef eignir Landsbankans dygðu fyrir helmingi innistæðunnar. Þetta kann að hljóma flókið fyrir flestum, og því hefur Datamarket brugðið á það ráð að setja deiluna um forgang krafna fram á myndrænan hátt svo almenningur átti sig betur á málinu. „Við erum ekki að reyna að taka afstöðu með því hvor leiðin er rétt, heldur eingöngu sýna muninn á leiðunum tveimur," segir Hjálmar. Glærusýningu Datamarket, þar sem forgangur krafna er útskýrður, má sjá hér að neðan, en fyrirtækið hefur einnig unnið Icesave reiknivél í samvinnu við Morgunblaðið.
Mest lesið Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Sjá meira