Viðskipti innlent

ÍLS kaupir íbúðalán af Spkef fyrir 9,7 milljarða kr.

Sparisjóðurinn í Keflavík (Spkef) og Íbúðalánasjóður hafa að undanförnu átt viðræður um sölu íbúðalána Sparisjóðsins, að verðmæti um 9,7 milljarðar, til Íbúðalánasjóðs. Þær viðræðum eru nú á lokastigi.

Lánin verða seld á bókfærðu verði og fær Sparisjóðurinn í Keflavík greitt 80% af andvirði lánanna strax en 20% greiðast síðar. Sala íbúðalánanna hefur engin áhrif á eiginfjárstöðu Sparisjóðsins í Keflavík en styrkir aftur á móti lausafjárstöðu Sparisjóðsins.

Þann 30. júní 2008 námu heildarútlán Sparisjóðsins í Keflavík 72 milljörðum króna.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×