Lífeyrissjóðir vilja taka þátt í fjármögnun Tónlistarhúss 14. apríl 2009 19:04
Landsbankinn veitti þriggja og hálfs milljarðs króna lán til að tryggja áframhaldandi framkvæmdir til Tónlistarhúsið. Vextir af láninu eru næstum tuttugu prósent. Lífeyrissjóðir hafa átt í óformlegum viðræðum við Austurhöfn, eiganda tónlistar og ráðstefnuhússins í Reykjavík, um að taka þátt í fjármögnun verksins. Nýi Landsbankinn lánaði þrjá og hálfan milljarð króna til þess að tryggja að vinna við tónlistar og ráðstefnuhúsið héldi áfram. Þetta kemur fram í samningi um yfirtöku opinberra aðila á öllu sem tengist tónlistar og ráðstefnuhúsi, hóteli og öðrum framkvæmtum við hafnarbakkann í Reykjavík. Vextirnir af láninu nema nítján komma níutíu og fimm prósentum. Tilgangur lánsins var samkvæmt samningnum að lúka uppgjöri útistandandi skulda við verktaka og kröfuhafa Portusar, sem var í eigu Gamla Landsbankans og Nýsis. Portus ætlaði að sjá um framkvæmdir við Tónlistar- og ráðstefnuhús og fleira á hafnarbakkanum í Reykavík. Ríki og borg hafa nú tekið verkefnið yfir. Gert er ráð fyrir að opinberir aðilar greiði árlega hátt í 860 milljónir króna til verkefnisins, næstu þrjátíu og fimm árin. Búið var að ráðstafa tíu milljörðum króna þegar ríki og borg tóku verkefnið yfir í heild sinni; þar á meðal hótelreit og það sem átti að verða Reykjavik World Trade Center. Bankarnir þrír, Nýi Landsbanki, Nýja Kaupþing og Íslandsbanki lána fjórtán komma fimm milljörðum króna. Það á að reyna að endurfjármagna það erlendis með veði í framtíðargreiðslum opinberra aðila. Gamla Landsbankanum tókst ekki að ljúka við erlent sambankalán með sams konar veðum á árunum 2006 til átta. Þetta er þó ekki það eina sem er reynt, því Austurhöfn TR, sem sér um verkefnið fyrir ríki og borg, hefur átt í óformlegum viðræðum við lífeyrissjóði um fjármögnun. Þetta kemur fram í gögnum frá Ríkisendurskoðun, sem fréttastofa hefur undir höndum. Hugmyndin er að lífeyrissjóðirnir kaupi skuldabréf sem gefin verði út. Andvirðið verði síðan notað til að greiða banka, teljist það hagkvæmt.
Mest lesið Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira