Aalborg Portland mótmælir ríkisaðstoð Sementsverksmiðjunnar á Akranesi Gunnar Örn Jónsson skrifar 26. ágúst 2009 12:51 Sementsverksmiðjan á Akranesi.
Bjarni Óskar Halldórsson, framkvæmdastjóri Sementsverksmiðjunnar Aalborg Portland á suðurnesjum, er ekki sáttur við að Sementsverksmiðjan á Akranesi krefjist þess að ríkið hlaupi undir bagga með Sementsverksmiðjunni og mismuni hinu danska Aalborg Portland svo þjóðin fái aftur notið sements frá Sementsverksmiðjunni á Akranesi, sem nú er í eigu einkaaðila. Í fréttatilkynningu frá Aalborg Portland kemur fram að félagið hafi rofið áratuga einokum Sementsverksmiðju ríkisins með því að hefja innflutning á sementi árið 2000. Viðtökurnar hafa verið afar góðar að sögn framkvæmdastjórans og hefur félagið fjárfest fyrir hundruðir milljóna króna í tækjum og aðstöðu í Helguvík. Auk þess kemur fram að Aalborg Portland hafi engan áhuga á einokun á íslenskum sementsmarkaði heldur þvert á móti samkeppni íslenskum neytendum í hag, hvort sem það er frá Sementsverksmiðju á Akranesi í eigu íslenskra og norskra fyrirtækja eða öðrum. „Hver sem er getur flutt sement til landsins, líkt og Aalborg Portland gerir. Hjá félaginu vinna íslenskir starfsmenn, flestir á Suðurnesjum. Í kreppunni hefur félagið því miður þurft að draga saman segl og fækka starfsfólki líkt og mörg önnur fyrirtæki," segir Bjarni. Fyrir sex árum seldi ríkissjóður Sementsverksmiðjuna á Akranesi þremur einkafyrirtækjum; BM Vallá, Björgun og hinu norska Norcem. Ríkissjóður borgaði með sölunni á Sementsverksmiðjunni Ríkissjóður þurfti að leggja fram um það bil hálfan milljarð króna með verksmiðjunni, auk þess að taka yfir lífeyrisskuldbindingar fyrir sömu upphæð og beita sér fyrir sérsamningi á raforku og undanþágu frá umhverfisskatti sem evrópskar verksmiðjur víðast hvar þurfa að greiða. Í tilkynningunni kemur fram að þrátt fyrir ríflegt framlag til einkaaðila, skuldasöfnun Sementsverksmiðjunnar undanfarin ár, samkvæmt lánabók Kaupþings og gríðarlega sementssölu í góðærinu er upplýst að slökkva eigi á kolakyntum sementsofni á Akranesi vegna rekstrarerfiðleika.Ríkið hlaupi undir baggameð Sementsverksmiðjunni Þess er krafist að ríkið hlaupi undir bagga og mismuni hinu danska Aalborg Portland svo þjóðin fái aftur notið sements frá Sementsverksmiðju á Akranesi, nú í eigu einkaaðila. „Forsvarsmenn Samtaka iðnaðarins halda því fram að að íslensk einokun sé betri en dönsk og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tekur undir þau sjónarmið," segir í tilkynningunni. „Slíkur málflutningur er dapurlegur vitnisburður um ásetning þessara aðila um endurreisn íslensks atvinnulífs. Öll samtök atvinnulífsins á Íslandi - líka Samtök iðnaðarins - hafa lagt áherslu á frjálsa samkeppni þrátt fyrir ofurvald ríkisins um þessar mundir. Þess vegna eru ummæli framkvæmdastjóra SI óskiljanleg og afar sorgleg. Aalborg Portland fer hvorki fram á ívilnanir né styrki heldur aðeins að hafðar séu í heiðri heiðarlegar leikreglur á markaði. Það mun gagnast íslenskri þjóð best," segir í tilkynningunni frá framkvæmdastjóranum.
Mest lesið Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Sjá meira