FME stendur við ákvörðun sína gagnvart Marel 10. mars 2009 16:16
Í ljósi umfjöllunar Marel Food Systems hf. í fjölmiðlum í gær vegna stjórnvaldssektarákvörðunar Fjármálaeftirlitsins á hendur félaginu þann 4. desember sl., telur Fjármálaeftirlitið nauðsynlegt að eftirfarandi komi fram. Marel Food Systems hf. hefur haldið því fram í fjölmiðlum að félagið hafi aldrei litið svo á að það hafi hafnað sáttarboði Fjármálaeftirlitsins vegna máls þessa. Með hliðsjón af þessum ummælum vill Fjármálaeftirlitið benda á að í stöðluðu orðalagi sáttarboðs þess sem barst Marel Food Systems hf. kemur skýrt fram að verði greiðsla vegna sáttarboðsins ekki innt af hendi á umsömdum gjalddaga teljist sáttin ekki samþykkt. Þar sem félagið greiddi ekki umrædda fjárhæð innan þess frests sem veittur var hafi því ekki verið hægt að líta öðruvísi á málið en að félagið hafi hafnað sáttarboðinu. Einnig hefur Marel Food Systems hf. haldið því fram í fjölmiðlum að félaginu hafi komið verulega á óvart þegar stjórn Fjármálaeftirlitsins tók fyrrnefnda ákvörðun þann 4. desember sl. um að beita félagið stjórnvaldssekt en það hafi talið að viðræður um málið væru enn í gangi. Vegna þessa skal tekið fram að í síðasta bréfi Fjármálaeftirlitsins til félagsins vegna máls þessa, áður en tekin var ákvörðun um lyktir þess, var skýrt tekið fram að fyrir lægi að taka ákvörðun í málinu.
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira