Útlendingar áhugalitlir um kaup á ríkisvíxlum og bréfum 10. mars 2009 11:58
Útlendingar hafa undanfarið verið áhugalitlir um útboð ríkisvíxla og -bréfa en áhugi innlendra aðila á slíkum bréfum hefur verið þeim mun meiri. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að Seðlabankinn sendi nýverið frá sér yfirlit yfir lánamál ríkisins og kemur þar fram að útboði ríkisvíxla um miðjan síðasta mánuð keyptu útlendingar aðeins um 0,7 milljarða kr. af þeim 10 milljörðum kr. sem seldir voru í útboðinu. Erlendir fjárfestar héldu sig svo alfarið frá útboði tveggja lengstu ríkisbréfaflokkanna, RIKB13 og RIKB19. Er það í takti við lítinn áhuga útlendinga á skuldabréfaflokkum með langan líftíma undanfarið. Erlendir fjárfestar hafa þó verið nokkuð virkir kaupendur á eftirmarkaði með ríkisbréf og -víxla, og er talið að þeir eigi verulegan hluta af stystu ríkisbréfaflokkunum, innstæðubréfum Seðlabankans og útistandandi ríkisvíxlum. Hefur áhugi útlendinga á ríkisvíxlum t.a.m. aukist töluvert frá því fyrst eftir að útgáfa þeirra var hafin að nýju í desember síðastliðnum. Erlendir aðilar eiga einnig allháar fjárhæðir í innistæðum í íslenskum fjármálastofnunum. Samkvæmt Seðlabanka voru innlendir bankar, verðbréfasjóðir og viðskiptavinir eignastýringar bankanna atkvæðamestir í ríkisbréfaútboðinu og fyrrnefndu aðilarnir tveir keyptu raunar einnig nærri tvo þriðju hluta ríkisvíxlanna í útboðinu um miðjan febrúar.Fyrir innlenda fjárfesta eru ríkistryggð skuldabréf álitlegur kostur þessa dagana, enda ekki í mörg önnur hús að venda. Hlutabréfamarkaðurinn er vart svipur hjá fyrri sjón, skuldabréfaútgáfa banka og stærri fyrirtækja hefur engin verið undanfarna mánuði og erlend verðbréfakaup eru óheimil undir núverandi gjaldeyrishöftum.
Mest lesið Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Neytendur „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Hreiðar Már og Kristján Ara sleppa líklega undan ábyrgð Viðskipti innlent Persónuvernd sektar Creditinfo um 37 milljónir Viðskipti innlent Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Sjá meira