Veltan á millibankamarkaði með gjaldeyri er hrunin 10. mars 2009 10:32
Tvo fyrstu mánuði ársins var velta á millibankamarkaði með gjaldeyri tæpir 4 milljarðar kr. í hvorum mánuði en leita þarf allt aftur til ársins 1995 til að finna viðlíka veltu í einum mánuði. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu en þar kemur fram að þær breytingar sem orðið hafa á fjármálamörkuðum hér á landi á undanförnum mánuðum koma glögglega í ljós á millibankamarkaði með gjaldeyri. Veltan á millibankamarkaði er nú ekki nema svipur hjá sjón miðað við það sem áður var. Í febrúar nam velta með gjaldeyri á millibankamarkaði rétt tæpum 4 milljörðum króna en í febrúar fyrir ári síðan var veltan 550 milljarðar króna. Taka skal fram að gjaldeyrisviðskipti eru þó öllu meiri en þessar tölur benda til þar sem verulegur hluti þeirra fer ekki í gegnum millibankamarkað og eru því ekki inn í þessum tölum. Til vitnis um þau hamskipti sem orðið hafa á gjaldeyrismarkaði þá var veltan í febrúarmánuði síðastliðnum jafnmikil og hún var á meðaldegi á millibankamarkaði árið 2005. Allt frá árinu 2005 hefur velta á millibankamarkaði numið hundruðum milljarða í hverjum mánuði. Á síðasta ári fór veltan þrisvar sinnum yfir 1.000 milljarða .kr. innan eins mánaðar en það gerðist í mars, júlí og rétt áður en bankahrunið skall á í september. Sú breyting sem nú er orðin á veltutölunum er raunar í samræmi við það mat margra að aðeins séu um 5-10% af gjaldeyrisviðskiptum á fjármálamörkuðum heims tengd verslun með vöru og þjónustu. Núverandi gjaldeyrismarkaður á Íslandi er einmitt takmarkaður við þess konar viðskipti. Seðlabankinn hefur verið umfangsmikill á gjaldeyrismarkaði frá bankahruninu í haust. Seðlabankinn hefur staðið að baki um það bil þriðjungs af þeirri veltu sem verið hefur frá því að markaðurinn opnaði á ný í byrjun desember s.l. Fyrir bankahrunið var Seðlabankinn afar umsvifalítill á gjaldeyrismarkaði en allt frá árinu 2004 og þar til bankahrunið skall á voru umsvif Seðlabankans innan við 1% af heildarveltunni á millibankamarkaði. Þetta er því mikil breyting frá því sem áður var.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira