Jafet greiði 250 þúsund í sekt 10. mars 2009 12:03 Jafet Ólafsson.
Jafet Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri VBS fjárfestingabanka, var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir brot gegn lögum um fjármálafyrirtæki. Jafeti var gert að greiða 250 þúsund krónur í sekt ella sæta 18 daga fangelsis. Jafeti var gefið að sök að rjúfa trúnað við Geir Zoega með því að láta lögmanninn Sigurð G. Guðjónsson hafa upptöku að samtali Jafets og Geirs. Í samtali við fréttastofu sagðist Jafet vera alsaklaus af ákærunni, fáránlegt væri að fella dóminn á þennan hátt og að hann hlyti að íhuga að áfrýja málinu til Hæstaréttar. Forsaga málsins er sú að til stóð að Jafet annaðist milligöngu um kaup Fjárfestingafélagsins Grettis, þar sem Sigurður var framkvæmdastjóri, á hlut Geirs í Tryggingamiðstöðinni. Geir hætti við söluna rétt áður en til stóð að gera kaupsamning og sagði hann Jafet í símtali frá því að hann hefði gert samning við aðra um kaup á hlutnum. í símtali og var Sigurður ósáttur við þau málalok og taldi að yfirtökuskylda hafi myndast í ljósi þess að nýju kaupendurnir áttu þegar stóran hlut í TM. Sigurður sendi þá Fjármálaeftirlitinu erindi og notaði hann hljóðupptökuna frá Jafeti til þess að færa rök fyrir máli sínu. Geir kvartaði þá til FME og sagði að Jafet hefði brotið á sér trúnað. Nokkru síðar, eða í haust, tók FME þá ákvörðun að kæra málið til lögreglu. Jafet var einnig gert að greiða lögmanni sínum 250 þúsund.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira