Viðskipti innlent

Stöðutökur gegn krónu verða rannsakaðar

Rannsóknarnefnd um bankahrunið mun taka til skoðunar stöðutöku gegn íslensku krónunni segir formaður rannsóknarnefndar um bankahrunið. Exista sver af sér að hafa tekið stöðu gegn krónunni umfram eðlilegar gengisvarnir.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Varaformaður Landssambands íslenskra útvegsmanna hefur áður sagt að bankar og eigendur þeirra hafi markvisst reynt að veikja krónuna í hagnaðarskyni. Á sama tíma hefðu bankarnir gert gjaldmiðilsskiptasamninga við sjávarútvegsfyrirtæki og lífeyrissjóði sem gerðu ráð fyrir að krónan styrktist. Hann nefndi sérstaklega Existu og Kjalar, stærstu eigendur Kaupþings.

Exista sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem því var hafnað að fyrirtækið hefði haft hag að því að krónan veiktist. Allir samningar við bankana gegn krónunni hafi verið eðlilegar gengisvarnir. Páll Hreinsson, formaður rannsóknarnefndar um bankahrunið, segir að nefndin muni taka stöðutöku gegn íslensku krónunni til skoðunar að því marki sem þau áttu sér stað fyrir 6. október. Friðrik J. Arngrímsson, formaður LÍÚ, hefur einnig kallað eftir því að hinn sérstaki sakskónari sem rannsaka á hrunið muni taka málið til athugunar. Enn sem komið er hefur enginn verið ráðinn í það starf. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×