Stjórnarformaður Byrs lætur af störfum 5. mars 2009 14:21 Jón Þorsteinn Jónsson.
Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarformaður Byrs, hefur tilkynnt að hann sjái sig knúinn til að láta tímabundið af stjórnarstörfum fyrir sparisjóðinn fram að næsta aðalfundi hans. Við stjórnarformennsku Jóns Þorsteins tekur Jón Kristjánsson sem verið hefur varaformaður stjórnar Byrs. Í tilkynningu Jóns Þorsteins til stjórnar sparisjóðsins, segir um ástæðu þessarar ákvörðunar, að félög nátengd honum standi nú í samningum við lánardrottna. Á meðan á því samningaferli standi, muni það krefjast allrar athygli hans og tíma og að hann telji af þeim sökum óheppilegt að starfa í stjórn fjármálafyrirtækis á sama tíma. Jón Þorsteinn hefur verið stjórnarformaður sparisjóðsins frá árinu 2004. Áður hafði hann setið í stjórn hans frá árinu 2001. Í tilkynningu frá stjórn Byrs segir að stjórnin lýsi fullu trausti á Jón Þorstein og þakkar honum það góða starf sem hann hefur unnið af heilindum fyrir Byr, „jafnt við uppbyggingu sparisjóðsins sem á umbrotatímum undanfarinna mánuða og óskar honum velfarnaðar í þeim verkefnum sem framundan eru."
Mest lesið Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Fleiri fréttir Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Sjá meira