Viðskipti innlent

Verðmat nýju bankanna liggur fyrir en verður ekki birt nú

Deloitte LLP hefur lokið bráðabirgðaverðmati þeirra eigna sem fluttar voru út úr gömlu bönkunum til að mynda efnahag Nýja Kaupþings banka, NBI og Íslandsbanka. Ekki er unnt að birta upplýsingarnar að svo stöddu.

Í frétt um málið á vefsíðu Fjármálaeftirlitsins segir að samhliða vinnslu verðmatsins hefur Oliver Wyman yfirfarið framkvæmd þess fyrir hvern banka. Fyrirtækin vinna nú að lokafrágangi matsins. Þess er vænst að fullnaðarútgáfa þess liggi fyrir í næstu viku.

Skýrslurnar skiptast í tvo hluta. Í fyrri hluta er lýst aðferðafræði og forsendum og birtar niðurstöður sem lúta að því að verðmæti eignanna sem fluttar voru úr bönkunum liggi á tilteknu verðbili. Í síðari hluta er að finna mat á einstökum eignum. Þessi hluti hefur að geyma viðkvæmar upplýsingar og er bundinn ríkum trúnaði.

Nauðsynlegt er að upplýsingar um verðmat séu fyrst birtar samningsaðilum og þeim gefinn kostur á að taka afstöðu til þeirra og kynna sér þær ítarlega. Þegar samningar hafa náðst verður samantekt á efni skýrslnanna gerð opinber.

Í skýrslunum er meðal annars að finna viðkvæmar og verðmyndandi upplýsingar og því er ekki unnt að birta þær opinberlega að svo stöddu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×