Engar breytingar - 1443 strikuðu yfir nafn Steinunnar Valdísar 28. apríl 2009 17:56 Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Útstrikanir kjósenda í Reykjavíkurkjördæmi norður höfðu ekki áhrif á röð frambjóðenda, að sögn Erlu S. Árnadóttur formanns kjörstjórnar. Alls strikuðu 1443 kjósendur yfir nafn Samfylkingarkonunnar Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur. Samfylkingin fékk 11.568 atkvæði og fjóra þingmenn kjörna í kjördæminu og var Steinunn í fjórða sæti. Næstflestar útstrikanir fengu flokksbræður Steinunnar þeir Helgi Hjörvar og Mörður Árnason. 657 strikuðu yfir nafn Helga og 656 strikuðu yfir Mörð sem skipaði fimmta sæti á framboðslista flokksins. Þráinn Bertelsson, oddviti Borgarahreyfingarinnar í kjördæminu, fékk 300 útstrikanir sem er nokkuð mikið miðað við atkvæðamagn framboðsins, að sögn Erlu. 3357 kjósendur greiddu Borgarahreyfingunni atkvæði sitt í kjördæminu. Þá strikuðu 403 kjósendur Sjálfstæðisflokksins yfir nafn Sigurðar Kára Kristjánssonar en hann náði ekki kjöri í kosningunum á laugardaginn. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 7508 atkvæði í kjördæminu. Ekki er von á tölum yfir útstrikanir í Reykjavíkurkjördæmi suður fyrr en á morgun. Fjöldi útstrikana sem og bilun kom upp í tölvukerfi í dag orsakar seinkunina, segir Sveinn Sveinsson formaður kjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi suður.
Tengdar fréttir Kristján Þór og Birkir Jón með flestar útstrikanir í NA Kristján Þór Júlíusson og Birkir J. Jónsson alþingismenn eru með flestar útstrikanir í Norðausturkjördæmi, en hvor þeirra um sig virðist vera með á þriðja hundrað útstrikanir. Kristján Möller samgönguráðherra er með um það bil 170 útstrikanir, en aðrir voru með mun færri. Þetta sýnir grófleg athugun yfirkjörstjórnar á útstrikunum. 27. apríl 2009 10:36 Þórunn og Þorgerður fengu flestar útstrikanir Flestir strikuðu yfir nöfn Þórunnar Sveinbjarnardóttur og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur í Suðvesturkjördæmi í kosningunum um helgina eða um eitt þúsund sinnum. 28. apríl 2009 11:53 Miklar útstrikanir hjá Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki „Samkvæmt okkar útreikningum fellur Árni Johnsen niður um eitt sæti en það er þá landskjörstjórnar að skera endanlega úr um það,“ segir Karl Gauti Hjaltason, formaður yfirkjörstjórnar í Suðurkjördæmi. 27. apríl 2009 06:00 Árni Johnsen fellur líklega niður um sæti Árni Johnsen fellur líklega niður um eitt sæti í kosningunum vegna útstrikana á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Hann heldur þó þingsæti. Þúsundir útstrikana voru á kjörseðlum í Reykjavíkurkjördæmunum. Það verður þó ekki ljóst fyrr en eftir helgi hvort að einhverjir færist niður um sæti. 26. apríl 2009 18:30 Fjórðungur beitti útstrikunum Allt að 25 prósent kjósenda einstakra framboða strikuðu yfir nöfn frambjóðenda á atkvæðaseðlum í Reykjavíkurkjördæmi suður í kosningunum á laugardag. 28. apríl 2009 05:00 Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira
Kristján Þór og Birkir Jón með flestar útstrikanir í NA Kristján Þór Júlíusson og Birkir J. Jónsson alþingismenn eru með flestar útstrikanir í Norðausturkjördæmi, en hvor þeirra um sig virðist vera með á þriðja hundrað útstrikanir. Kristján Möller samgönguráðherra er með um það bil 170 útstrikanir, en aðrir voru með mun færri. Þetta sýnir grófleg athugun yfirkjörstjórnar á útstrikunum. 27. apríl 2009 10:36
Þórunn og Þorgerður fengu flestar útstrikanir Flestir strikuðu yfir nöfn Þórunnar Sveinbjarnardóttur og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur í Suðvesturkjördæmi í kosningunum um helgina eða um eitt þúsund sinnum. 28. apríl 2009 11:53
Miklar útstrikanir hjá Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki „Samkvæmt okkar útreikningum fellur Árni Johnsen niður um eitt sæti en það er þá landskjörstjórnar að skera endanlega úr um það,“ segir Karl Gauti Hjaltason, formaður yfirkjörstjórnar í Suðurkjördæmi. 27. apríl 2009 06:00
Árni Johnsen fellur líklega niður um sæti Árni Johnsen fellur líklega niður um eitt sæti í kosningunum vegna útstrikana á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Hann heldur þó þingsæti. Þúsundir útstrikana voru á kjörseðlum í Reykjavíkurkjördæmunum. Það verður þó ekki ljóst fyrr en eftir helgi hvort að einhverjir færist niður um sæti. 26. apríl 2009 18:30
Fjórðungur beitti útstrikunum Allt að 25 prósent kjósenda einstakra framboða strikuðu yfir nöfn frambjóðenda á atkvæðaseðlum í Reykjavíkurkjördæmi suður í kosningunum á laugardag. 28. apríl 2009 05:00