Mikill munur á skráningu krónunnar erlendis og hérlendis 13. mars 2009 12:14
Þróun gengis krónu gagnvart evru á erlendum mörkuðum hefur verið talsvert önnur en á innlendum markaði síðustu daga. Þannig fengust 200 kr. fyrir hverja evru í miðlunarkerfi Reuters fyrir viku síðan en nú hljóða tilboð í miðlunarkerfinu upp á 220-225 kr. á evruna, sem er lægsta gengi krónu gagnvart evru frá janúarlokum. Á innlandsmarkaðinum er evran nú skráð á rúmar 146 kr. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að viðskipti voru einnig með mesta móti á þriðjudag samkvæmt gögnum Reuters, en einmitt þá byrjaði krónan að veikjast í vikunni. Bilið milli gengis krónu á innlendum og erlendum markaði hefur því aukist töluvert undangenga viku, sem bendir til þess að einangrun þessara markaða hvors frá öðrum hafi aukist á tímabilinu og að afar erfitt sé nú um vik að nýta þá möguleika á að hagnast sem til staðar eru vegna ólíks gengis. Hvað varðar veikingu krónunnar í gær upp á 2,4% segir greiningin að líklegt er að hún tengist tengist væntanlegum vaxtagjalddaga á ríkisbréfaflokki upp á tæplega 71 milljarða kr. að nafnvirði en 7% vaxtagreiðsla af honum er á gjalddaga á þriðjudag í næstu viku. Hér er því um nærri 5 milljarða kr. greiðslu að ræða sem að verulegu leyti fellur í skaut erlendra eigenda bréfanna, en gjaldeyriskaup vegna vaxtatekna eru leyfileg undir gjaldeyrishöftunum. Ekki er þó víst að hér séu að öllu leyti á ferðinni gjaldeyriskaup vegna greiðslnanna sjálfra, þar sem ákveðnum vandkvæðum er bundið fyrir erlenda fjárfesta að kaupa gjaldeyri fyrr en vaxtagreiðsla er sannanlega komin í þeirra hendur. Hins vegar kann vel að vera að aðrir þátttakendur á gjaldeyrismarkaði hafi viljað safna gjaldeyri í sarpinn nú vegna ótta við veikingu krónu í kjölfar vaxtagreiðslugjalddagans, til að mynda innflytjendur.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira