Sérfræðiaðstoð AGS hefur komið að góðu gagni 13. mars 2009 11:36
Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hefur undanfarnar rúmar tvær vikur unnið með íslenskum stjórnvöldum að fyrstu endurskoðunar efnahagsáætlunar stjórnvalda vegna lánafyrirgreiðslu sjóðsins. Sendinefndin, undir stjórn Mark Flanagans, hefur einnig átt fundi með fjölda hagsmunaðila til þess að kynna sér þróun íslensks efnahagslífs og áhrif efnahagshrunsins og hélt nefndin blaðamannafund í Seðlabankanum í dag. Þar kom meðal annars fram að á fundum stjórnvalda og AGS hefur verið rætt um horfur í efnahagsmálum og fjármálum, framvindu efnahagsáætlunarinnar til þessa, stefnu núverandi ríkisstjórnar og útfærslu áætlunarinnar næstu misserin. „Viðræðurnar hafa verið uppbyggilegar í alla staði og sérfræðiaðstoð sjóðsins víða komið að góðu gagni," segir í tilkynningu. Rætt hefur verið um mótun stefnu í ríkisfjármálum til næstu ára, áætlun um afléttingu gjaldeyrishafta og lækkun vaxta, nýja tímaáætlun fyrir enduruppbyggingu bankarkerfisins og greiðsluaðlögun fyrir heimilin. „Áætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er endurskoðuð ársfjórðungslega og lýkur hvert sinn með viljayfirlýsingu sem að grunni til byggir á þeirri fyrstu sem samin var í nóvember á síðasta ári, en tekur jafnramt mið af þróun mála og viðræðum við sjóðinn. Í yfirlýsingunni er aðgerðum stjórnvalda lýst og stefnan mótuð fyrir næstu misseri," segir einnig. Á næstu vikum verða nokkur tæknileg atriði vegna áætlunarinnar útkljáð. Í kjölfarið verður ný viljayfirlýsing lögð fyrir stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til umfjöllunar. „Búist er við afgreiðslu sjóðsins á vormánuðum og að henni lokinni berst íslenskum stjórnvöldum annar hluti láns hans. Heildarlánveiting AGS til Íslands nemur 2,1 milljarði bandaríkjadala. Þegar hafa verið greiddar 827 milljónir dala inn á reikning Seðlabanka Íslands í seðlabanka Bandaríkjanna. Ný viljayfirlýsing og greinargerð sendinefndar sjóðsins verða birtar að lokinni umfjöllun stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins," segir að lokum.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira