Viðskipti innlent

Kaupþing fær leyfi dómstóls til að kanna ákvörðun Breta

Dómstóll í Bretlandi (High Court) hefur heimilað Kaupþingi banka hf. að fylgja eftir kröfu sinni um að fram fari lögfræðileg endurskoðun á réttmæti ákvörðunar breskra stjórnvalda um að framselja til þriðja aðila, án bóta, innstæður á Kaupthing Edge reikningum hjá dótturfélagi bankans í Bretlandi, Kaupthing Singer & Friedlander, þann 8. október 2008.

Í tilkynningu segir að ákvörðunin var undanfari ákvörðunar breskra yfirvalda um að setja Kaupthing Singer & Friedlander í greiðslustöðvun sem hafði þær afleiðingar að lánardrottnar Kaupþings banka gjaldfelldu lán á hendur bankanum og Fjármálaeftirlitið tók yfir stjórn hans.

Að fenginni þessari niðurstöðu og með fyrirvara um að fjárstuðningur fáist frá íslenska ríkinu til að halda málinu áfram, mun nú fara fram sönnunarfærsla og efnislegur málflutningur fyrir dómstólnum um þau sjónarmið sem bjuggu að baki íhlutun breskra stjórnvalda í rekstur Kaupthing Singer & Friedlander, en Kaupþing banki heldur því fram að aðgerðir breskra stjórnvalda hafi verið óréttmætar og andstæðar lögum.

Skilanefnd Kaupþings banka fagnar því að þessum áfanga skuli náð og vonast til að fjárstuðningur verði tryggður þannig að unnt verði að halda málaferlunum áfram. Skilanefnd Kaupþings banka áréttar einnig að afstaða dómstólsins felur ekki í sér vísbendingu um hverjar verði endanlegar lyktir málsins, að loknum málflutningi um efnisþætti þess.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×