Stjórnendur: Slæmar eða mjög slæmar aðstæður í efnahagslífinu 26. október 2009 15:48
Aðstæður í efnahagslífinu eru nú slæmar eða mjög slæmar að mati 95% stjórnenda í stærstu fyrirtækjum landsins. Er þetta meðal niðurstaðna í ársfjórðungslegrar könnunar Capacent Gallup á stöðu og horfum hjá 500 stærstu fyrirtækja landsins, en könnunin var gerð í septembermánuði. Fjallað er um könnunina á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins. Þar segir að mat stjórnenda á aðstæðum í efnahagslífinu að þessu sinni sé ámóta slæmt og fram hefur komið í hliðstæðum könnunum undanfarið ár. Mikill samdráttur fjárfestingar í atvinnulífinu endurspeglast með skýrum hætti í könnuninni. Útlit er fyrir að fjárfesting muni dragast saman um 20% að nafnvirði á næsta ári eða um 26% að raunvirði, en í þjóðhagsáætlun er hins vegar spáð rösklega 10% magnaukningu á næsta ári. Þegar horft er sex mánuði fram í tímann kemur fram ívið jákvæðara mynd þar sem um fjórðungur stjórnenda býst við að aðstæður verði þá nokkuð betri. Þriðjungur þeirra telur engu að síður að aðstæður verði verri að sex mánuðum liðnum. Í heild er því ekki vænst umbóta á næstu sex mánuðum. Þegar stjórnendur reyna hins vegar að skyggnast 12 mánuði fram í tímann, eykst bjartsýnin. Telja um 62% þeirra að aðstæður verði þá nokkuð betri en aðeins um 22% að þær verði verri. Raunar er þetta áþekk niðurstaða og kom fram í samsvarandi könnunum fyrir 6 og 12 mánuðum síðan og lýsir e.t.v því að stjórnendur haldi í von um að aðstæður fari batnandi að ári liðnu þótt skýr merki um það skorti á næstu mánuðum.
Mest lesið Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? Viðskipti innlent Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Viðskipti innlent Valsstelpa í lyfjabyltingu: „Ég var alltaf svolítið skrýtin blanda“ Atvinnulíf Airpods allt að 40 prósent dýrari hérlendis Neytendur Vélfag stefnir ríkinu Viðskipti innlent Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Viðskipti innlent Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Viðskipti innlent Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Samstarf Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Sjá meira