Vilja frest til að ákveða hvort kröfuhafar fái 95% hlut í bankanum 29. september 2009 18:45
Skilanefnd Glitnis hefur farið fram á tveggja vikna frest til að taka ákvörðun hvort erlendir kröfuhafar eignist 95% hlut í Íslandsbanka. Kröfuhafar vilja meiri upplýsingar um fjárhagsstöðu bankans. Allt opið ennþá segir formaður skilanefndarinnar. Fyrir rúmum hálfum mánuði undirritaði skilanefnd Glitnis og íslenska ríkið samninga um uppgjör milli gamla og nýja bankans. Samkomulagið felur í sér að erlendir kröfuhafar geta eignast 95% hlutafjár í Íslandsbanka. Ákvörðunin átti að liggja fyrir á morgun, svo verður ekki. Árni Tómasson, formaður skilanefndarinnar óskaði eftir því í dag við fjármálaráðuneytið að fá að fresta ákvörðuninni í tvær vikur. Hann átti í dag símafundi með óformlegu kröfuhafaráði. Þar kom fram að kröfuhafar telja sig vanta upplýsingar til að geta tekið ákvörðun um málið. Nýjar fjárhagsupplýsingar um Íslandsbanka hafa verið lagðar fram um rekstur og efnahag bankans og munu næstu tvær vikur verða nýttar til að fara yfir þær með fjármálaráðgjafanum UBS. Árni sagði þegar skrifað var undir samninginn fyrir hálfum mánuði að helmingslíkur væru á að erlendir kröfuhafar eignuðust bankann. Spurður um hvort sömu líkur eigi við núna segir hann að allt sé opið meðan ekki sé búið að taka ákvörðun. Ekki náðist í Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra vegna málsins í dag.
Mest lesið Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Sjá meira