Hugmyndir verða að tækifærum í Iðnó - verðlaun fyrir þær bestu 29. september 2009 10:10 Jeff Taylor á ráðstefnu í Borgarleikhúsinu í júní.
Jeff Taylor, stofnandi Monster.com, kemur í annað sinn til Íslands á nokkrum mánuðum 5. okt næstkomandi. Hann hyggst hjálpa íslenskum frumkvöðlum að breyta hugmyndum í tækifæri, fyrirtæki og blómleg viðskipti. Fólk er hvatt til að skila inn hugmyndum fyrir miðnætti á morgun. Jeff Taylor mun stýra 2 klst löngum hugarflugsfundi í Iðnó með íslenskum frumkvöðlum mánudaginn 5. október frá kl.16-18. Jeff stýrði sams konar fundi í Harvard Business School nú í september þar sem hann, ásamt Chris Hughes, eins stofnanda Facebook, og Paul English stofnanda kayak.com ferðavefsíðunnar, leiðbeindi frumkvöðlum um hvernig eigi að breyta hugmyndum í tækifæri, fyrirtæki og blómleg viðskipti. Fundurinn fer þannig fram að valdir íslenskir hugmyndasmiðir sem tóku þátt í Start09 hugmyndasamkeppni munu fá nokkrar mínútur hver til að kynna sína hugmynd. Jeff Taylor, Guðmundur Oddur Magnússon og Guðjón Már Guðjónsson munu svo þróa hugmyndirnar áfram á staðnum með þátttöku fundargesta. Að því loknu verða umræður um hugmyndirnar, framkvæmd viðskiptahugmynda almennt og skipst á þekkingu um þetta spennandi viðfangsefni. Jeff og félagar gefa allir vinnu sína. Allir geta verið með - vegleg verðlaun Fólk á öllum aldri er hvatt til þess að leggja fram hugmyndir og er vakin athygli á því að enga sérstaka viðskiptaáætlun þarf að leggja fram. Menn þurfa því aðeins að lúra á góðri hugmynd og skiptir ekki máli hve langt á þróunarbrautinni hún er komin. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin. Ein milljón króna fyrir fyrsta sætið, hálf milljón fyrir annað sætið og 250 þúsund krónur fyrir þriðja sætið. Frestur til að skrá hugmynd í hugmyndasamkeppnina rennur út á miðnætti á morgun miðvikudaginn 30. september. Hægt er að senda inn hugmynd á www.n1.is/start, en þar er einnig tekið á móti skráningum á fundinn í Iðnó á meðan húsrúm leyfir. Þetta er gott tækifæri fyrir hugmyndaríka Íslendinga til að koma hugmyndum sínum í farveg. Fjölmargar góðar hugmyndir hafa borist í keppnina en aðstandendur samkeppninnar telja að góðar hugmyndir geti komið íslensku atvinnulífi á lappirnar á ný. Ráðstefnan sem haldin var í Borgarleikhúsinu í júní er á Youtube.com/n1start.
Mest lesið Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Sjá meira