Viðskipti innlent

Vill að húsleitarheimildum verði beitt í rannsókn á bankahruninu

Stjórnvöld þurfa að beita fullri hörku í rannsókn á efnahagshruninu með því að gefa út húsleitarrannsóknir strax. Þetta sagði Eva Joly rannsóknardómari í Silfri Egils í dag. Joly sagði að þetta væri eina leiðin fyrir yfirvöld til að kanna hvort aðilar sem lægju undir grun um að hafa skotið undan fjármunum ættu leynilega bankareikninga eða ekki. Joly sagði að það væri grundvallaratriði að notuð væru öll meðöl sem eru notuð í sakamálum. Það þyrfti að gera húsleitir því að það nægði ekki að kalla grunaða í viðtöl.

Þá sagði Joly að það væri nauðsynlegt að hefja  rannsókn mála á Íslandi. Íslendingar gætu ekki fengið alþjóðahjálp án þess að vera með sannanir héðan frá. Joly sagði að tuttugu til þrjátíu manna hópur hæfra einstaklinga ætti vel að geta rannsakað málið. Þá sagði hún að það væru fullar forsendur fyrir rannsókn jafnvel þótt næstum sex mánuðir væru liðnir frá hruninu. Það væri ekki langur tími.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×