FÍS fundar með bankastjórum um skuldavanda fyrirtækja 21. september 2009 15:18
Undanfarið hefur stjórn Félags íslenskra stórkaupmanna (FÍS) fundað með bankastjórum stóru viðskiptabankanna og helstu stjórnendum þeirra um skuldavanda fyrirtækja. Fundir með Kaupþingi og Íslandsbanka hafa þegar farið fram en fundur með Landsbanka verður á miðvikudag. Fjallað er um málið á heimasíðu FÍS. Þar segir að tilgangur fundanna sé að fá upplýsingar frá bönkunum um hvernig haldið er utan málefni fyrirtækja í skuldavanda. Mikil umræða hefur verið um þessi mál og ýmsir félagsmenn FÍS hafa verið uggandi yfir því að ekki ríki jafnræði meðal skuldara þegar kemur að endurskipulagningu. Eins hafa menn vakið athygli á málum er varða samkeppni, t.d. í þeim tilvikum þar sem banki þarf að selja rekstrareiningar frá sér. Ljóst er að bankarnir eru meðvitaðir um þá tortryggni sem ríkir í samfélaginu vegna málefna fyrirtækja í skuldavanda og eru að móta verklag hvað varðar afskriftir skulda og ekki síður söluferli á fyrirtækjum sem þeir hafa eignast. Vilji stendur til þess að söluferli fylgi opnu og gagnsæju verkferli. Mikilvægt er að slíkt gildi einnig um söluferli á vegum skiptastjóra fyrirtækja. Það er gríðarlega mikilvægt að bankarnir hafi jafnræði og ekki síður samkeppni að leiðarljósi í starfsemi sinni. Vangaveltur og sögusagnir um möguleg og meint hrossakaup og vinargreiða eru engum til hagsbóta. FÍS mun fylgja þessu máli eftir, enda ríkir hagsmunir í húfi fyrir atvinnulíf.
Mest lesið Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Fleiri fréttir Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Sjá meira