Úr Íslandsmeti í hagnaði yfir í gjaldþrot innan árs 24. júlí 2009 14:35
Fons, eignarhaldsfélag Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, fór úr því að eiga Íslandsmet í hagnaði yfir í gjaldþrot á innan við ári. Í ágúst í fyrra hagnaðist Fons um 75 milljarða kr. á því að selja hlut sinn í verslunarkeðjunni Iceland í Bretlandi. Í dag eru fréttir um að skuldir þrotabús Fons nemi 20 milljörðum kr. „Þetta er sennilega Íslandsmet í hagnaði," sagði Pálmi Haraldsson í samtali við Fréttablaðið þann 16. ágúst í fyrra þegar greint var frá sölunni á hlutnum í Iceland og raunar fleiri fyrirtækjum í Bretlandi sem Fons átti hlut í. Í frétt á visir.is frá þessum tíma segir að Fons..."hafi selt hluti sína í Iceland, Landic Property, Booker, Goldsmith fyrir um 100 milljarða. Heimildir Vísis herma að hagnaður Fons af sölunni á hlutnum í Iceland sé um 75 milljarðar króna og yfir 80 milljarðar af heildarsölunni . Heimildir Vísis herma að hópur fjárfesta, þar á meðal Stoðir, áður FL Group, hafi keypt hlut Fons í Iceland og hinum félögunum og að þau kaup séu fjármögnuð með hjálp frá Landsbankanum, Glitni og Kaupþingi. Söluhagnaður Fons á hlut sínum í Iceland-keðjunni er fimmtán milljörðum meiri en hjá Björgólfi Thor Björgólfssyni þegar hann seldi búlgarska fjarskiptafyrirtækið BTC í fyrir rúmu ári. Sú sala hefur hingað til verið talin sú arðbærasta hjá íslenskum fjárfesti." Þess ber að geta að á milli Íslandsmetsins í hagnaði og gjaldþrots Fons hrundi bankakerfi og efnahagslíf Íslands.
Mest lesið „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Viðskipti innlent Stjarna í 66 ár, myndabikar, húmor í þeim gömlu og jólasveinakennsla Atvinnulíf Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes Viðskipti innlent Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Viðskipti innlent Sá elsti í heiðurshópnum níutíu ára Atvinnulíf Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Viðskipti innlent Auglýstu tilboð of títt og fá milljón í sekt Neytendur Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Viðskipti innlent Brú Talent kaupir Geko Consulting Viðskipti innlent Ætlar að endurreisa Niceair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Hulda nýr formaður Tækni- og hugverkaráðs SI Eldi verður eitt stærsta félag sinnar tegundar í heiminum Stærsti nóvembermánuður í sögu Icelandair Linda fer ekki fram til áframhaldandi stjórnarsetu Til Borealis Data Center eftir 22 ár hjá Össuri „Verðum að vona að þessi þróun haldi áfram“ Kaffi Ó-le opið á ný Sjá meira