Tvær flugur í einu höggi 11. febrúar 2009 06:00 Um 14 þúsund manns eru nú á atvinnuleysisskrá og fer þeim fjölgandi. Þetta er fólk með fjölbreytta menntun og ólíkan bakgrunn. Það hrópar á tækifæri til að nýta þekkingu sína og reynslu til að sjá sér farborða og taka þátt í að byggja upp nýtt samfélag. Stjórnvöldum ber skylda til að skapa þessu fólki tækifæri til að standa á ný á eigin fótum og takast á við krefjandi verkefni. Um leið gefst þeim kostur á að auka hagkvæmni í rekstri ríkisins. Í því skyni þurfa stjórnvöld að endurskoða verkefni hins opinbera og auka samstarf við einkaaðila. Einkaaðilar hafa mun meira svigrúm en ríkið til bregðast við nýjum viðskiptahugmyndum, útvíkka starfsemi sína og fjölga atvinnutækifærum og síðast en ekki síst að standa fyrir fjölþættri starfsemi jafnt í þágu opinberra aðila og einkaaðila. Með þessari áherslubreytingu taka stjórnvöld að sér hlutverk upplýsts og krefjandi kaupanda þar sem aukin áhersla er lögð á árangur og bætta nýtingu fjármagns. Ávinningurinn felst í því að með því að tiltekin starfsemi flyst til einkaaðila frá opinberum stofnunum eykst samkeppni um opinber verkefni og kaupendahópur fyrirtækjanna stækkar. Þeim er sköpuð betri starfsskilyrði með því að færa þeim stór og krefjandi verkefni og ný þekking verður til innan fyrirtækjanna sem styrkir stoðir þeirra til frekari afurðasköpunar. Nefnum tvö dæmi af ólíkum toga. Hugbúnaðarfyrirtæki hafa árum saman kallað eftir auknum verkefnum frá opinberum stofnunum, sem hafa rekið eigin tölvudeildir. Lagabreyting sem varð á árinu 2003 gerði einkaaðilum kleift að setja á stofn þjónustufyrirtæki, utan ríkiskerfisins, til að annast heilsuvernd, heilsufarsskoðanir og áhættumat á vinnustöðum. Fjölmörg fyrirtæki fagmenntaðra heilbrigðisstarfsmanna spruttu upp í kjölfarið, sem hafa skapað atvinnu og um leið létt verkefnum af opinberum starfsmönnum. Með útvistun verkefna ríkisins geta stjórnvöld slegið tvær flugur í einu höggi, skapað fleirum atvinnu og aukið hagkvæmni í rekstri ríkisins. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Grunnur að bjartri framtíð í Kópavogi Sigrún Bjarnadóttir Skoðun Það er ekki spurning hvort – heldur hvenær Arnar Helgi Lárusson Skoðun Strætó, bílar, rafhjól og gangandi fólk Unnar Jónsson Skoðun Einkabíllinn er mest niðurgreiddi ferðamátinn Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Að kjósa af yfirvegun Morgan Bresko Skoðun Hér er pláss fyrir þig Sandra Hlín Guðmundsdóttir Skoðun Öll börn eiga rétt á öryggi Arna Magnea Danks Skoðun Mjóeyrarhöfn og ný tækifæri fyrir Fjarðabyggð Elís Ármannsson Skoðun Hamfarir Hildar – seinni hluti Haraldur Freyr Gíslason Skoðun Hjólakynslóð framtíðar verður til Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Styðjum betur við börn í Kópavogi Ester Halldórsdóttir skrifar Skoðun Af hverju Viðreisn 16. maí? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkur ver ofurþéttingu við Birkimel Karólína Jónsdóttir skrifar Skoðun Frelsi foreldra og farsæl byrjun – heimgreiðslur til 24 mánaða Birgitta Ragnarsdóttir,María Araceli,Berglind Ósk Guttormsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík er ekki spilaborg Einar Mikael Sverrisson skrifar Skoðun Við stýrum hraða í landi Blikastaða Hilmar Gunnarsson skrifar Skoðun Einkabíllinn er mest niðurgreiddi ferðamátinn Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Það er ekki spurning hvort – heldur hvenær Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Hér er pláss fyrir þig Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Mjóeyrarhöfn og ný tækifæri fyrir Fjarðabyggð Elís Ármannsson skrifar Skoðun Fjölbreytileiki er styrkur sveitarfélaga Irina S. Ogurtsova skrifar Skoðun Heilbrigðara Ísland Victor Guðmundsson skrifar Skoðun Hjólakynslóð framtíðar verður til Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Grunnur að bjartri framtíð í Kópavogi Sigrún Bjarnadóttir skrifar Skoðun Strætó, bílar, rafhjól og gangandi fólk Unnar Jónsson skrifar Skoðun Að kjósa af yfirvegun Morgan Bresko skrifar Skoðun Öll börn eiga rétt á öryggi Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Umhverfið er okkar mál - Gaman að plokka í Garðabæ Guðfinna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Samfélag fyrir sum börn - framtíðarsýn sveitarfélaga fyrir fötluð börn Harpa Júlíusdóttir skrifar Skoðun Nauðsynlegar umbætur í menntamálum Inga Sæland skrifar Skoðun Urriðaholt svikið um almennilega sundlaug Laufey Gunnþórsdóttir skrifar Skoðun Hver bað um þessa illsku við eignalausa? Guðmundur Hrafn Arngrímsson,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum með skólasamfélaginu í Garðabæ! Harpa Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Fangelsi fyrir fjölskyldur - Ekki nota börn sem peð í pólitískri skák Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ferilsskrá í stað fagurgala Vigdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börnin aftur í aftursætið? Heiðdís Geirsdóttir skrifar Skoðun Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ást mín á íþróttum og silfurleysið í Peking Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Aukið aðgengi að áfengi? Lísbet Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þegar loforð duga ekki: Leikskólakerfið í Kópavogsbæ Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Um 14 þúsund manns eru nú á atvinnuleysisskrá og fer þeim fjölgandi. Þetta er fólk með fjölbreytta menntun og ólíkan bakgrunn. Það hrópar á tækifæri til að nýta þekkingu sína og reynslu til að sjá sér farborða og taka þátt í að byggja upp nýtt samfélag. Stjórnvöldum ber skylda til að skapa þessu fólki tækifæri til að standa á ný á eigin fótum og takast á við krefjandi verkefni. Um leið gefst þeim kostur á að auka hagkvæmni í rekstri ríkisins. Í því skyni þurfa stjórnvöld að endurskoða verkefni hins opinbera og auka samstarf við einkaaðila. Einkaaðilar hafa mun meira svigrúm en ríkið til bregðast við nýjum viðskiptahugmyndum, útvíkka starfsemi sína og fjölga atvinnutækifærum og síðast en ekki síst að standa fyrir fjölþættri starfsemi jafnt í þágu opinberra aðila og einkaaðila. Með þessari áherslubreytingu taka stjórnvöld að sér hlutverk upplýsts og krefjandi kaupanda þar sem aukin áhersla er lögð á árangur og bætta nýtingu fjármagns. Ávinningurinn felst í því að með því að tiltekin starfsemi flyst til einkaaðila frá opinberum stofnunum eykst samkeppni um opinber verkefni og kaupendahópur fyrirtækjanna stækkar. Þeim er sköpuð betri starfsskilyrði með því að færa þeim stór og krefjandi verkefni og ný þekking verður til innan fyrirtækjanna sem styrkir stoðir þeirra til frekari afurðasköpunar. Nefnum tvö dæmi af ólíkum toga. Hugbúnaðarfyrirtæki hafa árum saman kallað eftir auknum verkefnum frá opinberum stofnunum, sem hafa rekið eigin tölvudeildir. Lagabreyting sem varð á árinu 2003 gerði einkaaðilum kleift að setja á stofn þjónustufyrirtæki, utan ríkiskerfisins, til að annast heilsuvernd, heilsufarsskoðanir og áhættumat á vinnustöðum. Fjölmörg fyrirtæki fagmenntaðra heilbrigðisstarfsmanna spruttu upp í kjölfarið, sem hafa skapað atvinnu og um leið létt verkefnum af opinberum starfsmönnum. Með útvistun verkefna ríkisins geta stjórnvöld slegið tvær flugur í einu höggi, skapað fleirum atvinnu og aukið hagkvæmni í rekstri ríkisins. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Skoðun Frelsi foreldra og farsæl byrjun – heimgreiðslur til 24 mánaða Birgitta Ragnarsdóttir,María Araceli,Berglind Ósk Guttormsdóttir skrifar
Skoðun Samfélag fyrir sum börn - framtíðarsýn sveitarfélaga fyrir fötluð börn Harpa Júlíusdóttir skrifar
Skoðun Hver bað um þessa illsku við eignalausa? Guðmundur Hrafn Arngrímsson,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Fangelsi fyrir fjölskyldur - Ekki nota börn sem peð í pólitískri skák Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir skrifar