Hagnaður Alfesca drógst saman um tæp 20% 11. febrúar 2009 08:42
Nettóhagnaður Alfesca á fjórða ársfjórðung síðasta árs nam 17,8 milljónum evra eða rúmlega 2,6 milljörðum kr. sem er 19,8% samdráttur m.v. sama ársfjórðung 2007. Í tilkynningu um uppgjör félagsins segir að þrátt fyrir góða jólasölu hafði efnahagssamdráttur veruleg áhrif á afkomu ársfjórðungsins. „Alfesca tókst að ná jafngóðri sölu og á síðasta ári þrátt fyrir umtalsverðan samdrátt í almennri neyslu á 2. ársfjórðungi. Þessi árangur náðist með því að leggja fé í markaðssetningu og stýra verði til að tryggja að við værum samkeppnishæf en það setti pressu á framlegðina," segir Xavier Govare forstjóri félagsins. „Það er ánægjulegt að með markvissum markaðsaðgerðum allan ársfjórðunginn tókst okkur að viðhalda vexti og tryggja markaðsleiðandi stöðu í sölu á reyktum laxi og andalifarkæfu yfir hátíðarnar. Labeyrie hélt 23,7 og 20,6% markaðshlutdeild í þessum vöruflokkum." Xavier Govare reiknar með að markaðsaðstæður á seinni hluta fjárhagsársins verði mjög erfiðar og að almanaksárið muni almennt einkennast af ókyrrð í kjölfar þess að væntingar neytenda hafa fallið umtalsvert undanfarna mánuði. „Við gerum einnig ráð fyrir að mánuðirnir framundan muni einkennast af ókyrrð á gjaldeyrismörkuðum eftir því sem áhrif efnahagskreppunnar koma í ljós. Viðbrögð okkar við ástandinu eru að leita leiða til að halda föstum kostnaði samstæðunnar í skefjum, auka skilvirkni og halda öflugri vöruþróun áfram í þeim tilgangi að auka fjölbreytni og styrkja stöðu okkar á lykilmörkuðum," segir Xavier Govare.
Mest lesið Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira