VBS tapaði 4,3 milljörðum á fyrri helming ársins 1. september 2009 09:27
VBS fjárfestingarbanki hf. tapaði rúmlega 4,3 milljörðrum kr. á fyrstu sex mánuðum ársins. Samkvæmt árshlutareikningi tímabilsins 1. janúar til 30. júní 2009 nemur eigið fé 4,7 milljörðum króna og er eiginfjárhlutfall bankans 15,2%. Í tilkynningu um uppgjörið segir að hreinar vaxtatekjur voru neikvæðar um 1.357 milljónir króna samanborið við 334 milljóna króna hreinar tekjur á sama tímabili 2008 Rekstrarkostnaður tímabilsins nam 565 milljónum króna samanborið við 473 milljónir króna á sama tíma 2008. Launakostnaður var 23,7% lægri en á sama tímabili 2008. Eignir drógust saman um 28,9% á tímabilinu og eru nú ríflega 40 milljarðar kr. Skuldir lækkuðu um 25,4% á tímabilinu og nema nú 35,3 milljörðum kr. Eigið fé lækkaði úr 8,9 milljörðum króna í árslok 2008 í 4,7 milljarða kr. 30. júní 2009. Í tilkynningunni segir að árshlutauppgjör VBS fjárfestingarbanka hf. sýnir að rekstur bankans hefur verið erfiður á fyrri hluta ársins. Hreinar vaxtatekjur eru neikvæðar um 1.357 milljónir króna, og skýrist það að stórum hluta af gjaldfærslu á hluta þess hagræðis sem tekjufært var á árinu 2008 vegna núvirðingar láns frá Ríkissjóði. Einnig skýrist neikvæður vaxtamunur af því að bankinn reiknar sér ekki tekjur af umtalsverðum hluta lánasafnsins vegna vafa um fulla innheimtu þeirra við núverandi aðstæður. Virðisrýrnun útlána og annarra eigna er stór þáttur í afkomu tímabilsins. Fjárhæð hennar er 5,1 milljarður króna og nemur afskriftareikningur útlána nú liðlega 36% af útlánum bankans. Efnhagsaðstæður í landinu og stöðnun á fasteignamarkaði hafa orðið til þess að nokkur óvissa hefur skapast um mat á tryggingum fyrir útlánum bankans sem leiðir til að þess að rétt þykir að auka verulega framlög í afskriftareikning. Rekstur fjármálafyrirtækja er snúinn um þessar mundir. Staða fjömargra íslenskra fyrirtækja hefur versnað til muna það sem af er ári. Það veldur því að enn voru aukin framlög í afskriftarreikning til að mæta væntum útlánatöpum. VBS fjárfestingarbanki hefur því samanlagt, lagt liðlega þriðjung útlánasafns síns í afskriftarreikning til að mæta óvissu í starfsumhverfi bankans. Með hliðsjón af þessum aðstæðum í íslensku efnahagslífi er ómögulegt að fullyrða að ekki þurfi að auka enn framlög í afskriftarreikning og því mikilvægt að línur taki skjótt að skýrast í íslensku efnahagsumhverfi og batamerki fari að sjást. Það er trú okkar að með þeim skrefum sem verið er að stíga í þeim efnum, svo sem með afgreiðslu Alþingis á samkomulagi við Breta og Hollendinga og samningar við kröfuhafa hinna föllnu banka séu forsendur að skapast til efnahagslegrar endurreisnar. Engu að síður, býr bankinn við sterkt eiginfjárhlutfall og hefur enn bolmagn til að mæta erfiðum aðstæðum.
Mest lesið Olís sektað um kvartmilljón vegna fullyrðinga um kolefnisjöfnun Neytendur Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Viðskipti erlent Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Viðskipti innlent Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Viðskipti innlent Hugmyndin fæddist þegar þær hittust óvænt í hlíðum Helgafells Viðskipti innlent Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Viðskipti erlent Forstjóraskipti hjá Ice-Group Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Gengi Play í frjálsu falli Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Sjá meira