Skuldatryggingarálag hæst á Íslandi meðal Evrópuþjóða 16. janúar 2009 12:43
Ísland trónar á toppnum hvað skuldatryggingarálag varðar meðal Evrópuþjóða. Er álagið á ríkissjóð nú 930 punktar sem jafngildir því að 9,3% af nafnvirði þurfi að kosta til að tryggja skuldabréf í evrum á íslenska ríkið. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu í kjölfar fjármálaerfiðleikana á Írlandi þessa stundina. Skuldatryggingaálag á írska ríkið hefur stigið talsvert undanfarið, og í kjölfar síðustu frétta fór 5 ára álagið í 255 punkta (2,55%). Er Írland þar í þriðja sæti hvað varðar skuldatryggingaálag þróaðra Evrópuríkja. Álag á skuldir Grikklands er heldur hærra en á Írland. Írland er raunar gjarnan borið saman við Ísland þegar fjallað er um landið í fjármálapressunni þessa dagana. Bæði löndin eru lítil evrópsk eyríki þar sem hagvöxtur hefur verið hraður og fjármálakerfið stækkaði mikið i góðærinu framan af þessum áratug. Írska fjármálakerfið heldur þó enn sjó enda meira en helmingi minna í hlutfalli við landsframleiðslu heimalandsins en hið íslenska var orðið undir það síðasta. Írsk stjórnvöld hafa því átt hægara um vik að koma því til hjálpar en þau íslensku sínu fjármálakerfi, auk þess sem lausafjárvandi írskra banka hefur verið mun minni en hinna íslensku vegna aðgengis þeirra að evrópska seðlabankanum sem lánveitanda til þrautavara í heimamynt. Írsk heimili og fyrirtæki standa því ekki frammi fyrir gjaldeyriskreppu, háum vöxtum, verðbólguskoti og eiginfjárbruna af þeim sökum, ólíkt þeim íslensku. Á móti kemur að sterk evra gagnvart bresku pundi veldur töluverðum búsifjum á Írlandi, enda er u.þ.b. þriðjungur utanríkisviðskipta landsins við Breta. Þá er ljóst að kreppa mun að á Írlandi næsta kastið, en OECD spáði nýverið tæplega 2% samdrætti í landsframleiðslu þar í landi á árinu sem nú er nýhafið auk þess sem fasteignamarkaðurinn er þegar á hraðri niðurleið.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira