NBA í nótt: Chicago vann Cleveland í framlengingu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. janúar 2009 08:48 Luol Deng og félagar höfðu betur gegn LeBron og hinum í Cleveland. Nordic Photos / Getty Images
Cleveland tapaði aðeins sínum sjöunda leik í NBA-deildinni í nótt er liðið tapaði fyrir Chicago í framlengdum leik, 102-93. Cleveland átti reyndar möguleika að tryggja sér sigur á lokasekúndum leiksins en skot LeBron James geigaði. Chicago gerði sér svo lítið fyrir og skoraði tólf af fyrstu þrettán stigum framlengingarinnar og tryggði sér þannig á endanum „öruggan" sigur. Derrick Rose og Luol Deng reyndust afar dýrmætir á lokasprettnum í leiknum en Rose hélt sínum mönnum inn í leiknum undir lokin og Deng skilaði mikilvægum stigum í framlengingunni. Deng var stigahæstur með 22 stig en Rose kom næstur með sextán. Tyrus Thomas skoraði fimmtán stig. LeBron James skoraði 28 stig, tók fjórtán fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Maurice Williams kom næstur með 26 stig. Denver vann Phoenix, 119-113, einnig í framlengdum leik. Chauncey Billups náði að hrista af sér flensuveikindi og skoraði 26 stig í leiknum, þar af fimm í framlengingunni. Nene var með sautján stig og fjórtán fráköst og Kenyon Martin 24 stig. Hann setti niður þrist undir blálokin og tryggði sínum mönnum sigurinn. Grant Hill var stigahæstur hjá Phoenix með 25 stig, Amare Stoudemire skoraði 21 og Steve Nash 20. Portland vann New Jersey, 105-99. Brandon Roy skoraði 29 stig og Jerryd Bayless átti góða innkomu og skoraði 23. Devin Harris var stigahæstur hjá New Jersey með 23 stig.
NBA Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Sjá meira